Hatursorðræða á Íslandi Einar Baldvin skrifar 8. september 2024 09:01 Tjáningarfrelsi á undir högg að sækja, á Íslandi, sem og annarsstaðar í heiminum. Þar á ég bæði við vernd okkar almennra borgara gagnvart ritskoðun ríkisins, en líka það sem óræðara er: menningarlegt tjáningarfrelsi þ.e þá hugmynd að það sé hollt, gagnlegt, og jafnvel skemmtilegt, að skiptast á skoðunum. En þetta er ekki svona, nema síður sé, í dag: upphrópanir, útskúfun, og ritskoðun hafa eflst á svo öfgakenndan og margslunginn hátt að það er til að æra óstöðugan að reyna að botna í því hvað af því vex í skjóli ríkisvaldsins, stofnana, og tæknirisa, eða einfaldlega í krafti hins almenna borgara. Það er þó líklegast að þetta haldist allt í hendur. Nýlegt dæmi er ótrúlegt bréf Mark Zuckerberg, forstjóra Meta, þar sem hann viðurkennir að hafa látið undan þrýstingi Biden-Harris ríkisstjórnarinnar um að ritskoða efni á Facebook og Instagram í Covid faraldrinum. Flest okkar hafa bara látið lítið fyrir okkur fara - annaðhvort kyngt öllum óvenjulegum skoðunum, eða í besta falli látið þær flakka í einkasamtölum. Fórnarkostnaðurinn hefur einfaldlega verið of mikill fyrir allt venjulegt fólk, enda hafa málin þróast á þann hátt að það eru fyrst og fremst milljarðamæringar, sem virðast hafa efni á því að skiptast opinberlega á óviðurkenndum skoðunum. Þetta getur ekki gengið til lengdar, enda eru frjáls og opin samskipti lykillinn að bæði þroska og vellíðan, hvort sem um einstaklinga eða samfélög er að ræða. Þó virðist vera að rofa til. Hræðslan minnkar dag frá degi, fleiri eru tilbúnir að tjá sig um mikilvæg mál opinberlega, og þeir finna, þegar á hólminn er komið, að þeir eiga sér fleiri stuðningsmenn en þá grunaði.Það er gaman að sjá fólk vakna til lífsins, en mig grunar að þetta sé tímabundið ástand. Orð og gjörðir margra vestrænna leiðtoga nýverið bera þess öll merki að tjáningarfrelsið verði ekki umborið mikið lengur, amk ekki í þeirri mynd sem við áttum að venjast. Það er þrengt að því í ólíklegustu löndum t.d Bretlandi, Bandaríkjunum og Frakklandi, á ógnarhraða, og í krafti eftirlitstækni sem hefði gert slíkt óhugsandi áður fyrr. Í sumum tilfellum er gengið svo langt að fólk er svipt frelsinu fyrir að tjá skoðanir sínar. Slík ritskoðun að ofan frá hefur færst verulega í aukana á undanförnum árum, hvort sem hún er formlega staðfest með lögum eða vegna óeðliegs þrýstings frá ríkinu. Þetta er iðulega gert í dag með þeirri afsökun, að það sé til að sporna við upplýsingaóreiðu eða hatursorðræðu - tvenn illskilgreinanleg hugtök sem er auðveldlega hægt að þenja út í hið óendanlega. Í íslenskum lögum um hatursorðræðu segir t.d: „Hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ræðst opinberlega á mann eða hóp manna vegna þjóðernis þeirra, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar sæti sektum eða fangelsi allt að 2 árum.“ Það ætti að vera hverjum manni augljóst að þessi lög eru ekki aðeins loðin heldur alltof víðtæk. Hvað þýðir það t.d nákvæmlega að hæðast að hópi vegna þjóðernis og trúarbragða þeirra? Hvað þýðir “á annan hátt”? Það er afar auðvelt að misnota þessi lög sé viljinn fyrir hendi, og það er gert reglulega með lögsóknum. Hver slík, að ekki sé talað um þegar dómur fellur, hefur gríðarleg þöggunaráhrif út í samfélagið allt, og afleiðingarnar eru þær að aðrir hugsa sig tvisvar um áður en þeir þora að segja hug sinn. En ofangreind lög eru líka óþörf - því tjáningarfrelsið er nú þegar takmarkað á þann hátt sem langflestir telja eðlileg - það er bannað að ógna öðrum samþegnum eða hvetja til ofbeldis gegn þeim, alveg óháð því hvaða samfélagshópi þeir tilheyra, og það er í raun það eina sem þarf. Það er oft sagt að þrátt fyrir það að Ísland sé agnarsmátt land, þá geti það verið mikilvæg fyrirmynd annarra. Það er rétt, og á þessum síðustu og verstu tímum, þar sem frjáls tjáning þegnanna hefur aldrei verið mikilvægari, þá við ættum að gera betur en aðrir og verja rétt okkar til tjáningar af krafti. Af litlum neista verður oft mikið bál. Ég legg því til að við breytum lögum á Íslandi á þann hátt að tjáningarfrelsi sé tryggðara hér en nokkursstaðar annarsstaðar í heiminum. Að afnema öll lög um hatursorðræðu væri stórt skref í þá átt. Höfundur er listamaður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Tjáningarfrelsi Mest lesið Mjóbaksverkir – Hvað er rétt og rangt? Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hatursorðræða á Íslandi Einar Baldvin Skoðun Hvernig væri nú að spyrja unga fólkið? – Um dagleg mannréttindabrot okkar á börnum og unglingum Jón Karl Stefánsson Skoðun Sannleikurinn um Evrópusambandið III: Eflum álfuna okkar, Evrópu, og þar með ESB, barnanna okkar vegna! Ole Anton Bieldtvedt Skoðun Bókin er minn óvinur David Bergmann Skoðun Samfélag sem týnir sjálfu sér Viðar Halldórsson Skoðun Í tilefni af alþjóðlegum degi læsis: Brettum upp ermar! Guðbjörg Rut Þórisdóttir Skoðun Er traustið endanlega farið? Bubbi Morthens Skoðun Októberfest, opið bréf/erindi til Stúdentaráðs, rektors, Háskólaráðs Háskóla Íslands og háskólaráðherra Aðalsteinn Gunnarsson,Björn Sævar Einarsson Skoðun Af hverju er ég að þyngjast? Ég hef engu breytt! Harpa Lind Hilmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Að stytta biðlista Gunnar Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Bókin er minn óvinur David Bergmann skrifar Skoðun Hatursorðræða á Íslandi Einar Baldvin skrifar Skoðun Hvernig væri nú að spyrja unga fólkið? – Um dagleg mannréttindabrot okkar á börnum og unglingum Jón Karl Stefánsson skrifar Skoðun Mjóbaksverkir – Hvað er rétt og rangt? Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Sannleikurinn um Evrópusambandið III: Eflum álfuna okkar, Evrópu, og þar með ESB, barnanna okkar vegna! Ole Anton Bieldtvedt skrifar Skoðun Í tilefni af alþjóðlegum degi læsis: Brettum upp ermar! Guðbjörg Rut Þórisdóttir skrifar Skoðun Af upplýsingaóreiðu um orkumál Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Póstur í rugli? Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er traustið endanlega farið? Bubbi Morthens skrifar Skoðun Breytingar, gjörið svo vel Einar Þorsteinsson skrifar Skoðun Um fyrirsjáanleika aflaheimilda og tvöfeldni SFS Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að hjóla í manninn! Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Er Kópavogsmódelið ógn við jafnrétti? Hrund Traustadóttir,Ágústa Dröfn Kristleifsdóttir,Ólöf Björk Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Leikskólarnir eru fjöregg samfélagsins Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Októberfest, opið bréf/erindi til Stúdentaráðs, rektors, Háskólaráðs Háskóla Íslands og háskólaráðherra Aðalsteinn Gunnarsson,Björn Sævar Einarsson skrifar Skoðun Hvað ef við hefðum val? Heiðdís Geirsdóttir skrifar Skoðun Hvernig komum við í veg fyrir uppfærslu á afbrotaforritinu hjá ungum afbrotamönnum? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Kópavogsmódelið - Hagsmunir og þarfir barna Halla Ösp Hallsdóttir skrifar Skoðun Stefnumótun í málefnum innflytjenda: Samfélag okkar allra Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Stefnan er skýr - höldum ótrauð áfram Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Það er fæddur einstaklingur Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Börn eru fjöregg þjóðar Alma D. Möller skrifar Skoðun Kópavogsmódelið er lífgjöf til leikskólans Rakel Ýr Isaksen skrifar Skoðun Matmálstímar hafa forvarnargildi Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Rangar fullyrðingar forstjóra Landsvirkjunar – kafli 2 Haraldur Þór Jónsson skrifar Skoðun Af hverju er ég að þyngjast? Ég hef engu breytt! Harpa Lind Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Kópavogsmódelið: Kvenréttindafélagið og BSRB á villigötum Sigrún Hulda Jónsdóttir skrifar Skoðun Fjárfestum í börnum framtíðarinnar með því að fjárfesta í kennurum Jónína Einarsdóttir skrifar Skoðun Er skeið Sjálfstæðisflokksins liðið? Reynir Böðvarsson skrifar Sjá meira
Hvernig væri nú að spyrja unga fólkið? – Um dagleg mannréttindabrot okkar á börnum og unglingum Jón Karl Stefánsson Skoðun
Sannleikurinn um Evrópusambandið III: Eflum álfuna okkar, Evrópu, og þar með ESB, barnanna okkar vegna! Ole Anton Bieldtvedt Skoðun
Októberfest, opið bréf/erindi til Stúdentaráðs, rektors, Háskólaráðs Háskóla Íslands og háskólaráðherra Aðalsteinn Gunnarsson,Björn Sævar Einarsson Skoðun
Skoðun Hvernig væri nú að spyrja unga fólkið? – Um dagleg mannréttindabrot okkar á börnum og unglingum Jón Karl Stefánsson skrifar
Skoðun Sannleikurinn um Evrópusambandið III: Eflum álfuna okkar, Evrópu, og þar með ESB, barnanna okkar vegna! Ole Anton Bieldtvedt skrifar
Skoðun Er Kópavogsmódelið ógn við jafnrétti? Hrund Traustadóttir,Ágústa Dröfn Kristleifsdóttir,Ólöf Björk Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Októberfest, opið bréf/erindi til Stúdentaráðs, rektors, Háskólaráðs Háskóla Íslands og háskólaráðherra Aðalsteinn Gunnarsson,Björn Sævar Einarsson skrifar
Skoðun Hvernig komum við í veg fyrir uppfærslu á afbrotaforritinu hjá ungum afbrotamönnum? Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Stefnumótun í málefnum innflytjenda: Samfélag okkar allra Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar
Skoðun Kópavogsmódelið: Kvenréttindafélagið og BSRB á villigötum Sigrún Hulda Jónsdóttir skrifar
Skoðun Fjárfestum í börnum framtíðarinnar með því að fjárfesta í kennurum Jónína Einarsdóttir skrifar
Hvernig væri nú að spyrja unga fólkið? – Um dagleg mannréttindabrot okkar á börnum og unglingum Jón Karl Stefánsson Skoðun
Sannleikurinn um Evrópusambandið III: Eflum álfuna okkar, Evrópu, og þar með ESB, barnanna okkar vegna! Ole Anton Bieldtvedt Skoðun
Októberfest, opið bréf/erindi til Stúdentaráðs, rektors, Háskólaráðs Háskóla Íslands og háskólaráðherra Aðalsteinn Gunnarsson,Björn Sævar Einarsson Skoðun