Erlent

Hringdi í skólann og varaði við rétt fyrir á­rásina

Kjartan Kjartansson skrifar
Nemandi við Apalachee-framhaldsskólann faðmar prest daginn eftir skotárásina mannskæðu í síðustu viku.
Nemandi við Apalachee-framhaldsskólann faðmar prest daginn eftir skotárásina mannskæðu í síðustu viku. Vísir/EPA

Móðir unglingspilts sem skaut fjóra til bana í framhaldsskóla í Georgíu í Bandaríkjunum hringdi í skólann og varaði við „bráðri neyð“ rétt fyrir árásina. Hún hvatti skólaráðgjafa til að fara og finna son hennar strax.

Tveir nemendur og tveir kennarar féllu og níu særðust þegar fjórtán ára gamall piltur hóf skothríð með árásarriffli í Apalachee-framhaldsskólanum í Winder í Georgíu miðvikudaginn 4. september. Auk piltsins er faðir hans ákærður fyrir aðild að drápunum vegna þess að hann leyfði syni sínum að eiga skotvopn. Yfirvöld ræddu við feðgana um hótanir piltsins á netinu um skólaárásir í fyrra.

Símtal Marcee Gray, móður piltsins, við skólaráðgjafa aðeins um þrjátíu mínútum áður en árásin hófst er nú sagt vekja upp enn frekari spurningar um hvort að hægt hefði verið að afstýra henni, að sögn Washington Post.

Systir Gray deildi skilaboðum sem hún sendi henni með bandaríska blaðinu þar sem Gray sagðist hafa hringt í skólann og sagt ráðgjafanum að það væri brýn nauðsyn að finna son hennar strax. Símagögn sýni að símtalið hófst um hálftíma áður en vitni segjast hafa séð piltinn hefja skothríð.

Ráðgjafinn á að hafa sagt móðurinn að pilturinn hefði talað um skólaárás þá um morguninn. Skólastjórnandi hefði farið að í skólastofu piltsins en hann hefði ekki verið þar. Skotárásin hófst aðeins nokkrum mínútum síðar.

Gray staðfesti frásögn Washington Post eftir að umfjöllunin birtist fyrst. Hún vildi þó ekki segja hvað hefði orðið til þess að hún hringdi í skólann en sagðist hafa greint lögreglunni frá því.

„Skólinn brást þeim, þau hefðu getað komið í veg fyrir þessi dauðsföll en þau gerðu það ekki. Mér líður innilega þannig,“ segir Rabecca Sayarath, móðir bekkjasystur piltsins sem komst lífs af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×