Viðskipti innlent

Öllu starfs­fólki Northern Light Inn sagt upp

Lovísa Arnardóttir skrifar
Friðrik segir það gríðarleg vonbrigði að þurfa að segja öllu starfsfólki upp. Hann vonar að stuðningur og styrkir við fyrirtæki verði endurskoðuð.
Friðrik segir það gríðarleg vonbrigði að þurfa að segja öllu starfsfólki upp. Hann vonar að stuðningur og styrkir við fyrirtæki verði endurskoðuð. Aðsend og Vísir/Vilhelm

Öllu starfsfólki hótelsins Northern Light Inn var sagt upp síðustu mánaðamót eða alls 25 manns. Friðrik Einarsson eigandi hótelsins kallar eftir því að rekstrarstyrkir stjórnvalda til fyrirtækja í Grindavík verði endurskoðaðir. Hann geti aðeins greitt laun með því að hafa hótelið lokað. Á meðan það er lokað verði bókunarstaða áfram léleg. 

Hótelið hefur verið nánast alveg lokað frá því í nóvember í fyrra. Friðrik segir það mikil vonbrigði að þurfa ítrekað að senda fólk heim þegar hann gæti vel nýtt það á hótelinu. Bókunarstaðan sé þannig að hann geti ekki greitt laun. Hann hafi því þegið launastyrk frá stjórnvöldum en hafi ekki getað nýtt starfsfólkið á meðan.

Friðrik fjallar um málið í aðsendri grein á vef Vísis í dag. Hann segir eina aðalforsendu þess að opna Grindavík á ný sé að viðhalda öflugu atvinnulífi. Það hafi tekist illa með skilyrtum rekstrarstuðningi frá ríkinu. Fyrirtækin hafi getað viðhaldið ráðningarsambandi en þó aðeins með þeim skilyrðum að fólk mætti ekki til vinnu.

„Við erum næst stærsta ferðaþjónustufyrirtækið í Grindavík. Við höfum reynt að hafa opið eins mikið og við getum en þrátt fyrir allar tilraunir og þrátt fyrir að við sjáum jákvæð merki nú um fjölgun bókanna vorum við nauðbeygð að segja upp öllu okkar frábæra starfsfólki um síðustu mánaðamót,“ segir Friðrik í grein sinni.

Sjá einnig: Snúum leiknum í ávinning fyrir alla

Hann segir að í fullum rekstri hafi fyrirtækið verið með 44 kennitölur á skrá.

„Hluti þeirra var hlutastarfsfólk en þau duttu öll út í nóvember. Við héldum bara fasta starfsfólkinu en einhverjir hættu svo í sumar. Þegar fólk hefur hætt höfum við ekki ráðið neinn í staðinn. Í ágúst voru samanlagt 25 starfsmenn sem var svo öllum sagt upp um mánaðamótin. Við erum nauðbeygð til að segja þeim upp og það eru auðvitað gríðarleg vonbrigði,“ segir Friðrik í samtali við fréttastofu.

Enn hægt að afstýra uppsögnum

Hann telur að þetta hefði þó ekki þurft að ganga svona langt og að það sé mögulega enn hægt að afstýra þessu með því að gefa fyrirtækjum kost á að til dæmis þiggja stuðning en geta haft fólk í vinnu til að viðhalda verðmætasköpun.

Hann segir að fyrir fyrirtæki í Grindavík hafi tvenns konar stuðningur verið í boði. Annar styrkurinn hafi verið launastuðningur þar sem fyrirtæki gátu sótt styrk til ríkisins og fengið styrk til að greiða laun fólks allt að 630 þúsund krónum. Skilyrði var að tilkynna hvort að fólk væri að mæta til vinnu.

„Styrkurinn var eingöngu í boði ef starfsmaðurinn var heima. En þegar maður er að reka hótel þá þarf það að vera opið,“ segir Friðrik en allt frá því í nóvember hefur það verið mikið lokað.

„Þegar atburðirnir hefjast í nóvember lokuðum við en fengum svo grænt ljós á að opna í 11. janúar. Það gýs svo 14. janúar og 8. febrúar og 16. mars. Þá er meira og minna búið að vera lokað allan veturinn og bókunarstaðan í apríl og maí svo léleg,“ segir Friðrik og að hann hafi ekki haft annarra kosta völ en að hafa áfram lokað. Hótelið opnaði svo aftur 22. maí þegar bókunarstaðan var orðin betri á ný.

Hefðu getað bókað meira með fólkið í vinnu

„Ef við hefðum mátt nota fólkið á meðan við værum að þiggja styrkinn hefðum við getað bókað meira inn á hótelið í sumar og inn í haustið. Ég er með launakostnað upp á 22 milljónir en sá fram á að tekjur fyrir apríl yrði besta falli átta milljónir. Hvati styrkjanna var ekki til að styðja við atvinnulífið.“

Hann segir bókunarstöðuna ágæta út næstu mánuði og það verði hægt að greiða laun út uppsagnartímann.

„En maður rekur ekki hótel til lengdar með því að hafa fólkið heima. Ég get ekki verið í eldhúsinu, svarað tölvupóstum og þrifið herbergin og haldið öllu gangandi. Það er það sem ég er að gagnrýna,“ segir Friðrik.

Hann segist kalla eftir betri lausnum frá yfirvöldum fyrir fyrirtækin í Grindavík. Ef það sé vilji til að byggja aftur upp atvinnulífið í bænum verði að nálgast það með öðrum hætti.

Dýrara fyrir ríkið

„Ég tel að þetta sé líka miklu dýrara fyrir ríkið,“ segir hann og að hann myndi til dæmis vilja sjá styrki sem væru tekjutengdir. Gangi sem dæmi vel hjá honum í október þá fái hann ekki eins háan styrk.

„Af hverju er verið að dæla pening til mín. Ég hef sagt við stjórnmálamenn og nefndina sem er að störfum að ég þurfi ekki allan þennan pening. Ég þarf bara að hafa fólk í vinnu.“

Hann segist vel treysta sér til að tapa pening í vetur ef hann myndi vita að yfirvöld ætli að aðstoða hann við að keyra reksturinn aftur upp. Hann geti ekki gert það einn. Hann geti þá minnkað reksturinn, fækkað herbergjum í leigu og jafnvel dregið einhverjar uppsagnir til baka.


Tengdar fréttir

Skoða að breyta Hópinu í safn

Bæjarráð Grindavíkur hefur frestað niðurrifi íþróttamiðstöðvarinnar Hópsins og skoðar nú að breyta húsinu í safn. Forseti bæjarstjórnar vill losna við lokunarpósta og hleypa öllum inn í bæinn á næstunni.

Bæjar­ráð vill opna Grinda­vík fyrir al­menningi

Bæjarráð Grindavíkur vill að lokunarpóstar við bæinn verði fjarlægðir og bærinn verði opnaður sem fyrst fyrir almenningi. Forseti bæjarstjórnar segist vilja sýna fólki að bærinn sé ekki vesældin ein. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×