Erlent

Rann­sókn hafin en efa­semdir uppi um sekt Letby

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Komið hefur í ljós að „játningar“ Letby, sem hún skrifaði á blöð heima hjá sér, voru tilkomnar að frumkvæði meðferðaraðila sem höfðu hvatt hjúkrunarfræðinginn til að skrifa niður allar erfiðar hugsanir og tilfinningar vegna álags og streitu.
Komið hefur í ljós að „játningar“ Letby, sem hún skrifaði á blöð heima hjá sér, voru tilkomnar að frumkvæði meðferðaraðila sem höfðu hvatt hjúkrunarfræðinginn til að skrifa niður allar erfiðar hugsanir og tilfinningar vegna álags og streitu.

Rannsókn er hafin á því hvernig hjúkrunarfræðingnum Lucy Letby tókst að myrða sjö börn á tveggja ára tímabili án þess að það kæmist upp. Rannsóknin hefur verið gagnrýnd fyrirfram í kjölfar efasemda um sekt Letby.

Letby, 34 ára, var dæmd í margfalt lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt sjö börn og reynt að myrða önnur sjö á fæðingardeild Countess of Chester-sjúkrahússins, þar sem hún starfaði á árunum 2015 og 2016.

Þegar Letby var loks handtekinn höfðu nokkrir starfsmenn ítrekað lýst áhyggjum af því að hjúkrunarfræðingurinn hefði átt aðild að dularfullum dauðsföllum barna á deildinni.

Rannsóknin sem nú er farin í gang snýr aðeins að því hvers vegna stjórnendur gripu ekki inn í fyrr og til skoðunar verða meðal annars reynsla foreldra barnanna, framganga annarra starfsmanna og á hvaða tímapunkti Letby hefði átt að vera látin hætta og lögregla kölluð til.

Hópur sérfræðinga, meðal annars á sviði ungbarnalækninga og tölfræði, hafa hins vegar kallað eftir því að rannsókninni verði frestað eða forsendum hennar breytt. Þeir telja verulegan vafa leika á sekt Letby og að það sé hvorki tímabært né gagnlegt að útiloka að dauðsföllin megi rekja til vanrækslu frekar en ásetnings.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×