Innlent

Fram­boð Höllu Hrundar kostaði rúmar 27 milljónir króna

Kjartan Kjartansson skrifar
Halla Hrund Logadóttir faðmar Höllu Tómasdóttir eftir kappræður á Stöð 2 í vor. Sú fyrrnefnda mældist um tíma með forskot í skoðanakönnunum en sú síðarnefnda stóð uppi sem sigurvegari á kjördag.
Halla Hrund Logadóttir faðmar Höllu Tómasdóttir eftir kappræður á Stöð 2 í vor. Sú fyrrnefnda mældist um tíma með forskot í skoðanakönnunum en sú síðarnefnda stóð uppi sem sigurvegari á kjördag. Vísir /Vilhelm

Forsetaframboð Höllu Hrundar Logadóttur kostaði 27,4 milljónir króna en það skilaði rúmlega 82 þúsund króna afgangi. Halla Hrund lagði framboðinu til hátt í tvær milljónir króna af eigin fé.

Langmestu útgjöldin vegna framboðs Höllur Hrundar voru vegna augýsinga og kynningarkostnaðar, ríflega 14,8 milljónir króna, að því er kemur fram í uppgjöri sem var skilað til ríkisendurskoðunar. Fundir og ferðakostnaður nam rúmum 4,6 milljónum króna en annar kostnaður 7,1 milljón. Rekstur kosningaskrifstofu kostaði framboðið tæpar 750.000 krónur.

Meirihluta tekna sinn fékk framboðið frá 391 einstaklingi, alls 17,7 milljónir króna. Einstaklingar mega mest gefa forsetaframbjóðanda 400.000 krónur. Lögaðilar styrktu framboðið um rúma sex og hálfa milljón króna. Á meðal þeirra fyrirtækja sem styrktu Höllu Hrund voru Ölgerð Egils Skallagrímssonar, félag í eigu Helga Magnússonar og tvö félög fjárfestisins Sigurðar Gísla Pálmasonar sem gáfu hámarksupphæðina 400.000 krónur hvort.

Auk þeirra 1,9 milljóna króna sem Halla Hrund lagði framboðinu til úr eigin vasa gaf félagið Álfheimur ehf., sem hún og Kristján Freyr Kristjánsson eiginmaður henna eiga saman, framboðinu 400.000 krónur.

Halla Hrund varð þriðja í forsetakosningunum með 15,6 prósent atkvæða. Hún hafði á tímabili mælst með mestan stuðning frambjóðenda í skoðanakönnunum. Halla Hrund varði hátt í einni og hálfri milljóna króna meira í sitt framboð en Halla Tómasdóttir sem stóð á endanum uppi sem sigurvegari kosninganna. 

Báðar Höllurnar eyddu mun minna í sín framboð en Katrín Jakobsdóttir sem endaði í öðru sæti í kosningunum. Hennar kosningabarátta kostaði um 57 milljónir króna.


Tengdar fréttir

Framboð Katrínar mun dýrara en Höllu

Katrín Jakobsdóttir varði rúmlega 57 milljónum króna í forsetaframboð sitt. Það er rúmlega tvöfalt það sem Halla Tómasdóttir eyddi í framboð sitt. Kaupfélag Skagfirðinga var á meðal fjölmargra styrktaraðila Katrínar.

Framboð Höllu kostaði 26 milljónir

Halla Tómasdóttir varði 26 milljónum króna í framboð sitt til forseta Íslands. Þetta kemur fram í skýrslu hennar til Ríkisendurskoðunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×