Skoðun

Fimm ráð um hvernig þinn hópur getur stutt við þann sem greinist með krabba­mein

Hólmfríður Einarsdóttir skrifar

Þegar félagi í hóp greinist með krabbamein getur stuðningur hópsins skipt miklu máli. Rannsóknir sýna að góður stuðningur hefur meðal annars áhrif á jákvæðara viðhorf og betri lífsgæði hjá þeim sem greinist með krabbameinið. Það getur þó reynst erfitt að bjóða fram aðstoðina ef þið eruð ekki viss hvað er best að gera. Hér koma fimm ráð til að hjálpa ykkur að taka skrefið.

1) Hagnýt atriði. Það er yfirleitt nóg af erindum sem þarf að sinna á flestum heimilum og þeim fækkar ekki þegar krabbameinsveikindi koma upp. Hópurinn getur því boðist til að versla inn, útbúa kvöldmáltíðir, brjóta saman þvottinn, fara með bílinn í dekkjaskipti, vökva blómin, bjóða í mat og skutla í læknisheimsóknir. Ef börn eru á heimilinu má bjóða fram pössun eða sækja og skutla þeim í skóla og tómstundir.

2) Sálrænn stuðningur. Gott samtal getur gert gæfumuninn. Ef þið eruð ekki viss hvað sé best að segja er óþarfi að hafa áhyggjur af því. Hér snýst hlutverkið um að vera góður hlustandi. Leyfðu þeim krabbameinsgreinda að segja líðan síðan, hlæja og gráta án þess að koma með lausnir við áhyggjum hans, tilfinningum eða vangaveltum. Reyndu að gefa ekki gefa óumbeðin ráð, hvorki við mögulegum meðferðarúrræðum, bætiefnum eða bættari líðan. Létt snerting, bros og að kinka kolli bendir til þess að þú sért að hlusta af einlægni.

3) Félagsleg virkni. Ein af afleiðingum krabbameinsveikinda er félagsleg einangrun. Geta og úthald breytist og þátttakan þar af leiðandi líka. Reynið að sýna þessum breyttu þörfum skilning. Mikilvægt er að hópurinn haldi áfram að vera í sambandi, bæði til að spjalla um daginn og veginn og til að láta vita af viðburðum og hittingum hjá hópnum.

4) Andleg heilsa. Krabbameinsferlið er krefjandi og hefur mikil áhrif á andlega heilsu. Að sýna breyttum þörfum skilning, skipuleggja hluti sem veita gleði, henta betur og stuðla að uppbyggilegu og jákvæðu umhverfi skiptir máli. Þetta getur verið að njóta náttúrunnar í formi göngutúra, hugleiðslur eða slökun og eiga skemmtilega samræður um allt annað en veikindin.

5) Hreinskilin samskipti. Þarfir einstaklinga eru misjafnar og það á líka við um þörfina fyrir stuðning. Hópurinn getur komið með hugmyndir að stuðningi en best er að taka samtalið um hvernig aðstoð hentar hverju sinni. Við höfum ólíka eiginleika og til að hver og einn í hópnum geti nýtt sína eiginleika sem best er ekki síður mikilvægt að samtöl innan hópsins séu virk og hreinskilin. Svo má ekki gleyma að ferlið getur verið langt og þörfin fyrir stuðning er ekki minni þó lengra sé liðið frá krabbameinsgreiningunni.

Höfundur er iðjuþjálfi BSc.




Skoðun

Sjá meira


×