Lífið

Lygi­leg frammi­staða hjá báðum liðum í fimmföldum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Valur gegn Ösp í 16-liða úrslitum.
Valur gegn Ösp í 16-liða úrslitum.

Það má með sanni segja að Valur og íþróttafélagið Ösp hafi staðið sig vel í liðinum fimmföldum í Kviss á laugardagskvöldið. Spurningaþátturinn Kviss hóf þá göngu sína á nýjan leik.

Í liði Vals mættu þau Bergur Ebbi Benediktsson og Kristín Þóra Haraldsdóttir en fyrir hönd Aspar mættur þeir Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson.

Valsmenn fengu þá spurningu í fimmfölum að nefna fimm af þeim sex sjálfstæðum ríkjum heimsins sem byrja á Í.

Asparmenn áttu að nefna fimm kvikmyndahús í Reykjavík sem hafa hætt starfsemi. Þetta gekk nokkuð vel eins og sjá má hér að neðan.

Klippa: Lygileg frammistaða hjá báðum liðum í fimmföldum





Fleiri fréttir

Sjá meira


×