Körfubolti

Njarð­vík fær tvo

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Alexander Helgi mun spila í grænu í vetur.
Alexander Helgi mun spila í grænu í vetur. UMFN

Njarðvík hefur samið við Alexander Smára Hauksson og Isaiah Coddon fyrir komandi tímabil í Bónus-deild karla í körfubolta.

Alexander Smári er tvítugur að aldri og hefur spilað fyrir yngri landslið Íslands. Undanfarin ár hefur hann spilað í bandaríska háskólaboltanum og svo með Asker Aliens í efstu deild Noregs.

Coddon er 28 ára gamall Bandaríkjamaður með íslenskt ríkisfang en hann hefur spilað hér á landi í dágóða stund. Hann lék með Skallagrími, Haukum og síðast Álftanesi en færir sig nú til Njarðvíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×