Veður

Þurrt og bjart nokkuð víða

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti veður á bilinu fimm til tólf stig í dag.
Hiti veður á bilinu fimm til tólf stig í dag. Vísir/Vilhelm

Sérfræðingar Veðurstofunnar segja útlit fyrir þurru og björtu veðri nokkuð víða í dag þó að lítilsháttar skúrir gætu látið á sér kræla við Breiðafjörð, á Faxaflóa, á Reykjanesi og jafnvel vestantil á Suðurlandi einnig.

Á vef Veðurstofunnar segir að lægðir fyrir norðaustan og austan land hafi beint til okkar fremur kaldri norðanátt að undanförnu og eru þær ekki alveg úr sögunni og munu valda norðvestan strekkingi á austanverðu landinu í dag, en vestantil verður vindur hægari.

Gera má ráð fyrir hita á bilinu fimm til tólf stig yfir daginn þar sem verður mildast sunnanlands. Kólnar í kvöld og allvíða vægt frost í nótt.

„Á morgun hafa lægðir fjarlægst og við sitjum milli lægða í tiltölulega rólegu veðri og sólríkt víða um land.

Annað kvöld nálgast hins vegar næsta lægð úr suðri. Þá fer að blása hressilega syðst á landinu og fer að rigna þar,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Breytileg átt 3-10 m/s og víða léttskýjað. Hiti 4 til 12 stig yfir daginn, hlýjast á Suðurlandi. Vaxandi austanátt sunnanlands um kvöldið og fer að rigna þar.

Á laugardag: Austan og norðaustan 13-20, en hægari vindur eftir hádegi. Rigning víða um land. Hiti 3 til 14 stig, svalast í innsveitum fyrir norðan, en mildast við suðurströndina.

Á sunnudag: Norðan og norðvestan 8-15 og rigning eða slydda, en yfirleitt þurrt á sunnanverðu landinu. Hiti 2 til 12 stig, hlýjast á Suðausturlandi.

Á mánudag: Breytileg átt og víða þurrt og bjart veður. Hiti 5 til 10 stig að deginum, en allvíða næturfrost.

Á þriðjudag: Vaxandi suðaustanátt og fer að rigna, fyrst sunnanlands. Heldur hlýnandi.

Á miðvikudag: Suðlæg eða breytileg átt og víða væta, en þurrt að mestu á Austurlandi. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast austast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×