Lífið

Matar­boð hins full­komna gest­gjafa

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Góður matur bragðast betur í heillandi umhverfi.
Góður matur bragðast betur í heillandi umhverfi. Getty

Gestrisni, ljúfir tónar, notaleg lýsing, fallega dekkað borð og framsetning ljúffengra rétta eru grunnatriði þegar kemur að hinni fullkomnu matarupplifun. Hér að neðan má finna uppskriftir að þriggja rétta veislu ásamt nokkrum einföldum ráðum til að gera matarboðið sem eftirminnilegast.

Notaleg og ljúf stemning 

Tónlist: Settu tóninn fyrir kvöldið og vertu búinn að setja notalega tónlist á þegar gestirnir mæta. 

Lýsing: Dempaðu ljósin og kveiktu á kertum fyrir mjúka og hlýlega birtu.

Getty

Skreyting: Leggðu dúk eða diskamottur á borðið. Gættu að því að hafa dúkinn vel straujaðan. Dragðu fram fína matarstellið og raðaðu diskum, tveimur týpum af glösum ásamt hnífapörum fyrir alla rétti kvöldsins, og servíettu á hvern disk. Til að setja punktinn yfir i-ið er fallegt að skreyta með ferskum blómum.

Vertu tímanlega til að njóta: Undirbúðu allt sem hægt er fyrirfram til að minnka álagið á þér um kvöldið svo að þú njótir þín betur með gestunum.

Getty

Matur og drykkir

Ferskt hráefni: Notaðu hágæða hráefni og eldaðu allt frá grunni til að vera viss um að réttirnir bragðist sem best. Ef þú kaupir eitthvað tilbúið gættu þá að því að bera matinn fram á fallegum disk.

Drykkir: Vertu tilbúinn með fordrykk þegar gestirnir mæta.. 

Hafðu svo fjölbreytt úrval ad drykkjum á boðstólum um kvöldið, þar á meðal vín, kokteila og áfengislausa drykki. Hafðu í huga að drykkirnir þurfa passa við réttina sem er boðið upp á.

Getty

Þriggja rétta veisla fyrir braðlaukana


Rísotto með sveppum og truffluolíu

Uppskriftin er fyrir fjóra fullorðna, hægt er að helminga hana og bera fram sem forrétt.

Getty

Hráefni:

300 g arborio hrísgrjón

1 l kjúklinga- eða grænmetissoð

300 g sveppir (t.d. portobello eða villisveppir)

2 msk ólífuolía

1 laukur, fínt saxaður

2 hvítlauksgeirar, fínt saxaðir

100 ml hvítvín

50 g smjör

50 g parmesanostur, rifinn

Truffluolía eftir smekk

Salt og pipar

Aðferð:

Hitið ólífuolíu á pönnu, bætið við söxuðum lauk og hvítlauk og steikið þar til mjúkt.

Bætið sveppunum út á og steikið þar til þeir eru orðnir brúnir.

Hrærið arborio hrísgrjónunum út í og steikið í 2 mínútur.

Bætið hvítvíninu við og látið sjóða þar til það er að mestu gufað upp.

Hellið soðinu í skömmtum yfir hrísgrjónin og hrærið stöðugt þar til hrísgrjónin eru orðin mjúk, það tekur um 18-20 mínútur.

Blandið smjöri og parmesanosti saman við þegar rísottóið er tilbúið.

Smakkið til með salti, pipar og truffluolíu.

Berið fram með ferskum kryddjurtum og smá truffluolíu.


Beikonvafin nautalund

Getty

 Hráefni:

4 stk nautalund (um 200 g hver)

8 sneiðar beikon

2 msk olía

2 hvítlauksgeirar, saxaðir

50 g smjör

Salt og pipar

1 msk fersk steinselja, saxað

Kartöflumús til að bera fram með

Aðferð:

Vefjið nautalundarbitunum inn í tvær sneiðar af beikoni og festið með tannstönglum.

Hitið olíu á pönnu á háum hita og steikið nautalundina í 2-3 mínútur á hvorri hlið til að loka kjötinu.

Bætið smjöri, hvítlauk og steinselju á pönnuna og hellið yfir kjötið á meðan það steikist.

Setjið bitana inn í 180°C heitan ofn og bakið í 8-10 mínútur, eða þar til kjötið er miðlungssteikt.

Látið hvíla í fimm mínútur áður en það er borið fram.

Sjóðið kartölfur, flysjið og stappið saman með smjöri og salti. 

Piparostasósa með sveppum

Hráefni:

5 stk sveppir sneiddir niður

smjör

pipar

75 g kryddostur með pipar

2,5 dl rjómi 

1 grænmetisteningur

Aðferð:

Bræðið smjör í potti við meðalháan hita. Steikið sveppina þar til þeir eru orðnir brúnir.

Kryddið með pipar og bætið rjómaum út í.

Bætið grænmetisteningi og kryddosti við og látið malla í smá stund. 

Framsetning: Raðið fallega á hvern disk áður en rétturinn er borinn fram. Setjið tvær matskeiðar af kartölfumús á miðjan diskinn og steikina ofan á. Skreytið með einni rósmarín-grein. Setjið sósuna í litla skál til hliðar eða á diskinn. 


Súkkulaðifondant með vanilluís og ferskum berjum

Getty

Hráefni:

200 g dökkt súkkulaði (70% kakó)

100 g smjör

3 egg

100 g sykur

50 g hveiti

Vanilluís til að bera fram með

Fersk ber til skrauts

Aðferð:

Hitið ofninn í 200°C og smyrjið muffinsform vel.

Bræðið súkkulaði og smjör saman yfir vatnsbaði.

Í annarri skál, þeytið egg og sykur saman þar til blandan er ljós og létt.

Hrærið bræddu súkkulaðinu varlega saman við.

Sigtið hveiti út í og hrærið varlega saman þar til blandan er silkimjúk.

Hellið blöndunni í muffinsformin og bakið í 8-10 mínútur, þar til kökurnar eru stífar að utan en enn mjúkar að innan.

Berið strax fram með vanilluís og ferskum berjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×