Mikilvægi vísinda í þróun endurhæfingarstarfs á Reykjalundi Marta Guðjónsdóttir skrifar 12. september 2024 16:33 Á fallegum stað í Mosfellsbæ er Reykjalundur endurhæfing ehf, stærsta endurhæfingarstöð landsins. Þar fá árlega 1400 einstaklingar með fjölþættan vanda, læknisfræðilega þverfaglega endurhæfingu samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Reykjalundur hefur haft vísindarannsóknir í stefnu sinni um áratuga skeið og unnið markvisst að uppbyggingu innviða fyrir rannsóknir. Staða rannsóknarstjóra var sett á fót 1999, þriggja manna vísindaráð stofnað 2004 og vísindasjóður Reykjalundar úthlutaði fyrstu styrkjum 2006. Vísindadagur Reykjalundar hefur verið haldinn árlega síðan 2004, með kynningum á niðurstöðum rannsókna starfsmanna Reykjalundar og nemenda þeirra. Á sama tíma hefur verið mikill vöxtur og þróun í háskólastarfi á Íslandi þar sem fjöldi nemenda í meistara- og doktorsnámi hefur vaxið hratt. Því hefur þörf fyrir þekkingu og aðstöðu til að þjálfa nemendur bæði í verknámi og vísindum aukist mjög. Á Reykjalundi er meirihluti starfsmanna með háskólamenntun og vaxandi hluti þeirra með framhaldsmenntun (meistara- og doktorsgráður). Hátt menntunarstig og sú reynsla í vísindastarfi, sem margir starfsmenn Reykjalundar hafa, er forsenda þess að þeir eru í stakk búnir til að sinna kennslu og vísindalegri þjálfun háskólanema. Í gildi eru samningar milli Reykjalundar og Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri um kennslu og vísindi. Hvernig hefur svo tekist til, hver er vísindavirknin á Reykjalundi? Ef notaðir eru viðurkenndir mælikvarðar á vísindavirkni svo sem fjöldi nemenda sem hafa lokið rannsóknarverkefnum, birtar vísindagreinar og fjöldi verkefna sem fengið hafa styrki úr samkeppnissjóðum kemur í ljós að virknin á Reykjalundi er veruleg. Alls hafa 57 nemendur lokið meistaranámsverkefni á Reykjalundi, 26 nemendur bakkalárverkefni og einn nemandi lokið doktorsverkefni, allt undir leiðsögn starfsmanna Reykjalundar í nánu samstarfi við háskólana. Á vísindadegi Reykjalundar hafa undanfarin ár verið 6-8 erindi ár hvert um niðurstöður rannsókna á Reykjalundi. Síðastliðin 15 ár hafa ein til fjórar vísindagreinar verið birtar á ári í viðurkenndum ritrýndum vísindatímaritum. Þegar þetta er ritað eru nokkur verkefni í gangi í samstarfi við aðrar stofnanir innanlands og utan. Má þar nefna fýsileikarannsókn á ReDO® íhlutuninni, sem er hópíhlutun byggð á iðjuþjálfun með það markmið að gera fólki fært að snúa aftur til vinnu eða í aðra virkni. Rannsóknin er unnin í samstarfi við Háskólana í Lundi og Halmstad í Svíþjóð, Háskólana í Osló og á Akureyri og hefur fengið styrki frá VIRK og Svíþjóð. Einnig er vert að nefna MicroFIBERgut, sem er rannsókn á áhrifum lífstílsbreytinga og kítósan fæðubótarefnis á þarmaflóru íslenskra kvenna. Rannsóknin er samstarfsverkefni Reykjalundar, Matís, Háskóla Íslands og Primex ehf og var styrkt af Tækniþróunarsjóði hjá Rannís. Nú er evrópskt rannsóknarverkefni í undirbúningi sem Reykjalundur tekur þátt í fyrir Íslands hönd. Verkefnið fjallar um langvinna öndunarfærasjúkdóma og er á vegum EU4Health Programme sem er styrkt af Evrópusambandinu. Mörg önnur rannsóknarverkefni eru í gangi á Reykjalundi sem ekki hafa verið talin upp hér. Um þau, nemaverkefnin, greinabirtingar og allt það sem tengist vísindum á Reykjalundi má lesa um á heimasíðu Reykjalundar, á slóðinni: https://www.reykjalundur.is/visindi-og-kennsla/ En til hvers vísindavinnu í endurhæfingu á Íslandi? Getum við ekki bara notað niðurstöður erlendra aðila sem stunda rannsóknir? Forstöðumaður vísinda á Landspítala, Magnús Gottfreðsson, svaraði seinni spurningunni í viðtali við Læknablaðið nýlega þar sem hann segir meðal annars: „Vísindastarfsemi hefur mikil menningarleg áhrif innan þeirrar stofnunar þar sem hún er stunduð…..þar sem verið er að búa til þekkinguna og starfsmenn eru gagnrýnir og mun færari um að taka upp nýjungar og kasta gömlum hugmyndum“ (Læknablaðið 6.tbl, 110 árg, 2024). Þetta kom heldur betur á daginn haustið 2020 þegar beiðnir fóru að berast á Reykjalund um endurhæfingu fólks með langvinn einkenni eftir Covid-19 veikindi. Þá reyndi svo sannarlega á klíníska reynslu starfsmanna, gagnrýna hugsun og vísindaleg vinnubrögð til að takast á við afleiðingar nýs sjúkdóms. Þverfagleg samvinna þvert á meðferðarteymi þar sem allir lögðu sitt á vogarskálarnar leiddi af sér meðferð, bæði almenna og sértæka, sem gaf mjög góðan árangur. Hvernig vitum við á Reykjalundi að árangurinn af meðferðinni var góður? Jú, við gerðum á því vísindarannsókn með leyfi vísindasiðanefndar, því það er leiðin til að svara slíkri spurningu. Ekki leikur nokkur vafi á gildi vísinda í starfsemi Reykjalundar á þeirri vegferð að vera leiðandi afl í endurhæfingu á Íslandi. Vísindi á Reykjalundi skapa grundvöll fyrir áframhaldandi þróun í læknisfræðilegri þverfaglegri endurhæfingu og gera Reykjalundi jafnframt kleift að leggja sitt af mörkum í góðri menntun og þjálfun nemenda í heilbrigðisvísindum á Íslandi. Höfundur er rannsóknarstjóri á Reykjalundi og dósent við Læknadeild Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sjálfstæðisflokkurinn Marta Guðjónsdóttir Mest lesið Grafið undan trúverðugleika ákæruvaldsins Róbert Spanó Skoðun Hugrenningar forstöðumanns Dögg Þrastardóttir Skoðun Halló! Er einhver til í að hlusta? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun „Spilaborgin hrynur einn daginn“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Stéttaskipt tjáningarfrelsi Tanja M. Ísfjörð Magnúsdóttir,Ólöf Tara Harðardóttir,Hulda Hrund Guðrúnar Sigmundsdóttir Skoðun Að vinna með fræðafólki úr landránsnýlenduríki Ingólfur Gíslason Skoðun Reykjavíkurborg leikur stórt hlutverk í verðbólgustöðunni Elliði Vignisson Skoðun „Bullið sem vellur upp úr þessu ágæta fólki“ Kristófer Már Maronsson Skoðun Risið er flott en kjallarinn molnar Davíð Bergmann Skoðun Hvers vegna borðar fólkið ekki bara kökur? Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvers vegna borðar fólkið ekki bara kökur? Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan - hvernig gengur? Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Mikilvægi vísinda í þróun endurhæfingarstarfs á Reykjalundi Marta Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar forstöðumanns Dögg Þrastardóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg leikur stórt hlutverk í verðbólgustöðunni Elliði Vignisson skrifar Skoðun Grafið undan trúverðugleika ákæruvaldsins Róbert Spanó skrifar Skoðun Að vinna með fræðafólki úr landránsnýlenduríki Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Hvalir, lög og líf: Ísland á siðferðilegum krossgötum Anahita Babaei,Elissa Phillips skrifar Skoðun Halló! Er einhver til í að hlusta? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Eftirfylgni og hagrænir hvatar í loftslagsmálum Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun „Spilaborgin hrynur einn daginn“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Risið er flott en kjallarinn molnar Davíð Bergmann skrifar Skoðun Lofsvert framtak ÖBÍ, BSRB og ASÍ Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Látið sjóði verkafólks vera Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun „Bullið sem vellur upp úr þessu ágæta fólki“ Kristófer Már Maronsson skrifar Skoðun Gögn sem ekki er hægt að TReysta Kristófer Már Maronsson skrifar Skoðun Fimm ráð um hvernig þinn hópur getur stutt við þann sem greinist með krabbamein Hólmfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Alþjóðlegar kröfur um króknandi en velupplýsta leikmenn Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Í orði en ekki á borði Áslaug Inga Kristinsdóttir skrifar Skoðun „Hvers virði er ég?“ – Áskorun til barna- og unglingabókahöfunda Friðrik Erlingsson skrifar Skoðun Að draga ályktanir af þrettán ára frétt Hörður Arnarson skrifar Skoðun Jafnlaunavottunin: Það er þörf á breytingum Drífa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við verðum að ræða um Reykjavíkurflugvöll Daði Rafnsson,Margrét Manda Jónsdóttir,Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Verndum íslenskuna! (Nema það kosti pening) Vilhelm Þór Neto skrifar Skoðun Áhöfnin sér loksins til lands Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Þið mótmælið... afleiðingum eigin gjörða Kristófer Már Maronsson skrifar Skoðun Sjö ára kláðinn: Engin vandamál, bara lausnir Jakob Frímann Magnússon skrifar Skoðun Stéttaskipt tjáningarfrelsi Tanja M. Ísfjörð Magnúsdóttir,Ólöf Tara Harðardóttir,Hulda Hrund Guðrúnar Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Stjórnlaus heimur Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ég er eiginlega alveg hætt að borða sykur Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Sjá meira
Stéttaskipt tjáningarfrelsi Tanja M. Ísfjörð Magnúsdóttir,Ólöf Tara Harðardóttir,Hulda Hrund Guðrúnar Sigmundsdóttir Skoðun
Skoðun Hvalir, lög og líf: Ísland á siðferðilegum krossgötum Anahita Babaei,Elissa Phillips skrifar
Skoðun Fimm ráð um hvernig þinn hópur getur stutt við þann sem greinist með krabbamein Hólmfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Við verðum að ræða um Reykjavíkurflugvöll Daði Rafnsson,Margrét Manda Jónsdóttir,Kristján Vigfússon skrifar
Skoðun Stéttaskipt tjáningarfrelsi Tanja M. Ísfjörð Magnúsdóttir,Ólöf Tara Harðardóttir,Hulda Hrund Guðrúnar Sigmundsdóttir skrifar
Stéttaskipt tjáningarfrelsi Tanja M. Ísfjörð Magnúsdóttir,Ólöf Tara Harðardóttir,Hulda Hrund Guðrúnar Sigmundsdóttir Skoðun