Upp­gjörið: KR - Víkingur 0-3 | Ís­lands­meistararnir fóru mikinn vestur í bæ

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Víkingar fagna.
Víkingar fagna. Vísir/Anton Brink

KR mátti þola 0-3 tap þegar tekið var á móti Víkingi á Meistaravöllum. Víkingar fara með sigrinum upp í efsta sæti deildarinnar, jafnir Breiðablik að stigum. KR situr áfram í 9. sæti, þremur stigum frá fallsvæðinu.

KR byrjaði af krafti og allt stefndi í æsispennandi leik, en fljótlega fundu Víkingar taktinn og eftir það var ekki aftur snúið.

Forystan var tekin eftir rúmlega tíu mínútur. Ari Sigurpálsson beið þar í breiddinni, með gríðarlegt og fékk boltann þegar hann vannst á miðsvæðinu. Keyrði upp kantinn og lagði fyrir markið á Gísla Gottskálk sem skoraði.

KR-ingar reyndu að draga lærdóm af því, gáfu Ara og Gísla ekkert pláss til að athafna sig í öðru markinu. Einhvern veginn tókst þeim tveimur samt að spila sig upp hægri kantinn, framhjá fjölmörgum varnarmönnum, Gísli gaf boltann svo á Valdimar Ingimundarson sem kláraði færið með utanfótarskoti.

Þriðja markið átti sér langan aðdraganda, KR hafði þá reynt að spila boltanum í öftustu línu nokkuð lengi og margoft verið tæpir að missa hann.

Það gerðist svo að Alex Þór átti lausa sendingu á Theodór Elmar, sem var of seinn í návígið og felldi Danijel Dejan Djuric í teignum. Hann steig sjálfur á punktinn og skoraði af öryggi.

Í hálfleik tók KR framherjann Benóny Breka af velli, eina manninn sem hafði átt skot á markið í fyrri hálfleik. Þar með var tónninn settur fyrir rólegan seinni hálfleik, þar sem KR lagðist langt til baka og gerði lítið til að reyna að minnka muninn.

Heimamenn áttu nokkrar ágætis skyndisóknir en sköpuðu ekki mikla hættu fyrr en undir blálokin.

Víkingar héldu vel í boltann, ógnuðu markinu töluvert og hefðu vel getað bætt við. Gerðu það hins vegar ekki og lokaniðurstaðan varð þriggja marka Víkingssigur.

Atvik leiksins

Það verður að vera þríhyrningsspilið sem leiddi til annars marksins. Fyrsta markið hefði mátt skrifa á einhverju óheppni og KR var alveg ennþá í ágætis séns. En í öðru markinu sýndu Víkingar yfirburði sína, sundurspiluðu og slökktu á öllum vonum sem KR hafði um sigur.

Stjörnur og skúrkar

Frábær frammistaða hjá Víkingsliðinu í heild sinni. Valdimar Ingimundarson með stórkostlega sýningu. Tarik Ibrahimagic leysti sitt hlutverk vel, hægri bakvörður en leitaði vel inn á völlinn. Gísli Gotti og Viktor Örlygur með alla stjórn á miðjunni.

Erfiður dagur hjá mjög mörgum KR-ingum. Theodór Elmar og Alex Þór í alls konar vandræðum á miðsvæðinu. Aron Þórður Albertsson var leikinn grátt í vinstri vængbakverðinum. Fremstu þrír fengu lítið að skína.

Stemning og umgjörð

Leikið var til styrktar og KR spilaði í fjólubláum búningum merktum Alzheimer-samtökunum. Mikilvægt málefni og vel staðið að. Mæting með besta móti og frábært veður. Stuðið og stemningin mikil í upphafi hjá heimamönnum, hægðist eðlilega aðeins á eftir fyrri hálfleik en þá sáu Víkingar bara um að halda uppi fjörinu.

Dómarar [7]

Elías Ingi Árnason með flautuna. Gylfi Már Sigurðsson og Guðmundur Ingi Bjarnason til aðstoðar. Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson sá fjórði.

Vítaspyrnan hárrétt ákvörðun. Gula spjaldið á Viktor Örlyg augljóst og rétt gefið. Furðulegt spjald sem Aron Sigurðarson fékk, fyrir leikaraskap en hann var samt ekki að biðja um neitt brot sjálfur. Annars alveg ágætt hjá kvartettinum í kvöld.

Viðtöl

Berast á Vísi innan skamms.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira