Íslenski boltinn

Yfirlögfræðingur KSÍ verður fram­kvæmda­stjóri Víkings

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Haukur Hinriksson hefur starfað undanfarin níu ár hjá Knattspyrnusambandi Íslands. 
Haukur Hinriksson hefur starfað undanfarin níu ár hjá Knattspyrnusambandi Íslands. 

Haukur Hinriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagsins Víkings. Hann hefur starfað undanfarin níu ár sem yfirlögfræðingur Knattspyrnusambands Íslands og tekur við stöðunni af Haraldi Haraldssyni sem hefur verið framkvæmdastjóri félagsins í fjórtán ár.

Haukur lék knattspyrnu með KA á Akureyri ásamt því að starfa fyrir félagið sumrin 2008-2012. Hann hefur einnig leikið í meistaraflokki hjá Völsungi á Húsavík, Þrótti Reykjavík og Þrótti Vogum.  Alls á hann að baki 59 leiki fyrir KA í næstefstu deild og skoraði í þeim þrjú mörk.

Tvíburabræðurnir Hinrik og Haukur Hinrikssynir. Hinrik (til vinstri) er framkvæmdastjóri sölusviðs hjá Nóa Siríus.fótbolti.net / Sævar Geir Sigurjónsson

Haukur útskrifaðist með BA gráðu og Meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík en hann stundaði einnig nám við Université de Cergy Pontoise í París. Hann lauk einnig LL.M. námi í alþjóðlegri samninga- og gerðardómsrétti frá University of Fribourg, Sviss. Hann stundar nú nám í viðskiptafræði MM í stjórnun við Háskólann á Akureyri.

Í fréttatilkynningu Víkings segir enn fremur:

Haukur hefur sem yfirlögfræðingur KSÍ starfað við góðan orðstír að mörgum mikilvægum verkefnum sem snúa m.a. að leyfismálum, aga- og kærumálum, lögum og reglugerðum, leikmannasamningum og umboðsmönnum leikmanna, svo eitthvað sé nefnt.

Haukur útskrifaðist með BA gráðu og Meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík en hann stundaði einnig nám við Université de Cergy Pontoise í París. Hann lauk einnig LL.M. námi í alþjóðlegri samninga- og gerðardómsrétti frá University of Fribourg, Sviss. Hann stundar nú nám í viðskiptafræði MM í stjórnun við Háskólann á Akureyri.

Valinn úr hópi margra mjög hæfra einstaklinga

,,Við erum gríðarlega ánægð með þessa ráðningu og bjóðum Hauk hjartanlega velkominn til Víkings. Haukur var valinn úr hópi margra mjög hæfra einstaklinga sem sóttu um stöðuna í mjög faglegu ferli sem félagið fór í við val á framkvæmdarstjóra. 

Haukur þekkir vel til íþróttalífs hér á landi eftir farsælt starf hjá KSÍ auk þess sem mikil reynsla hans af þeim vettvangi mun nýtast félaginu afar vel í sínum næstu skrefum og framtíðarsýn. Knattspyrnufélagið Víkingur hugsar hátt og hefur metnaðarfull markmið. Það er mjög spennandi vegferð og tímar framundan hjá félaginu okkar,“ segir Björn Einarsson, formaður Knattspyrnufélagsins Víkings.

Ljóst er að Haukur mun hafa í nógu að snúast í nýju starfi. Víkingur hefur vaxið ört undanfarin ár, iðkendafjöldi félagsins hefur aukist og svæði þess hefur stækkað eftir að Fram fluttist úr Safamýrinni. Auk þess streyma nú gífurlegir fjármunir inn í félagið, þökk sé árangri karlaliðsins í knattspyrnu sem tryggði sér í gær umspilseinvígi í Sambandsdeildinni.


Tengdar fréttir

Víkingar mæta liði Sverris og Harðar

Það skýrðist í dag hverjir verða mótherjar Víkings í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu. Dregið var í beinni útsendingu hér á Vísi.

Arnar ekki heyrt frá KSÍ: „Ekki flókið í mínum huga“

Arnar Gunn­laugs­son, þjálfari Víkings Reykja­víkur, hefur ekkert heyrt frá KSÍ varðandi stöðu þjálfara karla­lands­liðs Ís­lands í fót­bolta. Sam­bandið þar af leiðandi ekki beðið Víkinga um leyfi að ræða við Arnar sem reiknar með því, eins og staðan er í dag, að stýra Víkingum í Sam­bands­deild Evrópu í febrúar. Hlutirnir geti hins vegar breyst fljótt í fót­bolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×