Íslenski boltinn

KR með fæst stig á heima­velli í Bestu deildinni í sumar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
KR-ingar hafa verið í tómu tjóni á heimavelli sínum í Frostaskjólinu. Hér eru Axel Óskar Andrésson og Guy Smit að verjast en KR-liðið hefur fengið á sig meira en tvö mörk að meðaltali í leik á heimavelli í sumar.
KR-ingar hafa verið í tómu tjóni á heimavelli sínum í Frostaskjólinu. Hér eru Axel Óskar Andrésson og Guy Smit að verjast en KR-liðið hefur fengið á sig meira en tvö mörk að meðaltali í leik á heimavelli í sumar. Vísir/Diego

Ekkert lið mun fá færri stig á heimavelli í Bestu deildinni í sumar en KR. Það er orðið ljóst eftir að KR tapaði síðasta heimaleik sínum áður en úrslitakeppnin tekur við.

KR tapaði 3-0 á móti Íslandsmeisturum Víkings á Meistaravöllum í gær og hefur þar með aðeins náð í tíu stig úr ellefu heimaleikjum sínum í Bestu deildinni í sumar.

Tveir sigrar og fimm töp í ellefu leikjum. Jafnteflin eru fjögur. Markatalan er fimm mörk í mínus eða 18-23.

KR er tveimur stigum á eftir liðunum í næstsíðasta sæti.

Vestri er með 12 stig á heimavelli í sumar alveg eins og Fylkir en Fylkismenn eiga einn heimaleik eftir.

Einu sigrar KR á heimavelli í sumar komu á móti FH 12. ágúst (1-0) og á móti ÍA 1. september (4-2). Liðið tapaði heimaleikjum sínum á móti Fram (0-1), Breiðabliki (2-3), HK (1-2), Val (3-5) og Víkingi (0-3).

Liðið náði í eitt stig í leikjum á móti Vestra (2-2), Fylki (2-2), Stjörnunni (1-1) og KA (2-2).

  • Stig liða á heimavelli í Bestu deildinni 2024:
  • 1. Víkingur R. 26 stig
  • 2. Breiðablik 23 stig
  • 3. Valur 21 stig
  • 4. Stjarnan 20 stig
  • 5. ÍA 18 stig
  • 6. Fram 16 stig
  • 7. FH 16 stig
  • 8. KA 15 stig
  • 9. HK 13 stig
  • 10. Fylkir 12 stig
  • 11. Vestri 12 stig
  • 12. KR 10 stig



Fleiri fréttir

Sjá meira


×