Fótbolti

Ída Marín fer mikinn með Louisiana State

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ída Marín Hermannsdóttir er þegar búin að bæta markaskor sitt frá því í fyrra en hún er að byrja tímabilið afar vel í bandaríska háskólaboltanum.
Ída Marín Hermannsdóttir er þegar búin að bæta markaskor sitt frá því í fyrra en hún er að byrja tímabilið afar vel í bandaríska háskólaboltanum. @LSUSoccer

Íslenska knattspyrnukonan Ída Marín Hermannsdóttir er að byrja tímabilið vel í bandaríska háskólafótboltanum.

Ída Marín stundar nám við Louisiana State University, LSU, og spilar einnig fótbolta með liðinu.

Hún gat því ekki klárað tímabilið með FH-liðinu því skólinn í Bandaríkjunum var að byrja í ágúst.

FH-ingarnir skiluðu henni samt í flottu formi ef marka má byrjun hennar hinum megin við Atlantshafið.

Ída er þegar komin með sex mörk í fyrstu sjö leikjum liðsins. Hún er þegar búin að gera betur en í fyrra þegar hún var með fjögur mörk í tuttugu leikjum.

Hún hefur verið sjóðandi í síðustu tveimur leikjum því hún skoraði tvennu í tveimur leikjum í röð.

Ída Marín skoraði tvö mörk með mínútu millibili í 3-1 sigri LSU á Louisiana State og fylgdi því eftir með því að skora tvö mörk í 4-1 sigri LSU á San Francisco.

Louisiana State vakti athygli á íslenska leikmanninum sínum á samfélagsmiðlum eins og sjá má hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×