Fótbolti

Cecilía Rán og fé­lagar á toppnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þetta byrjar allt mjög vel hjá Cecilíu Rán Rúnarsdóttur í ítalska boltanum en hún er láni hjá Internazionale frá Bayern München.
Þetta byrjar allt mjög vel hjá Cecilíu Rán Rúnarsdóttur í ítalska boltanum en hún er láni hjá Internazionale frá Bayern München. Getty/Mattia Pistoia

Cecilía Rán Rúnarsdóttir og félagar hennar í Internazionale unnu 4-1 útisigur á Napoli í ítölsku kvennadeildinni í dag.

Cecilía Rán náði reyndar ekki að halda hreinu eins og í fyrsta leiknum en Inter hefur unnið fyrstu tvo leiki tímabilsins og markatalan er 9-1.

Napoli komst í 1-0 í uppbótatíma fyrri hálfleiksins. Leikmenn Inter sneru leiknum með þremur mörkum á fjórtán mínútna kafla í síðari hálfleik.

Mörk Inter skoruðu þær Annamaria Serturini, Tessa Wullaert og Michela Cambiaghi en síðasta markið var síðan sjálfsmark.

Það gekk ekki eins vel hjá Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur og félögum í Bayer Leverkusen. Þær komust í 2-0 á móti Eintracht Frankfurt en misstu leikinn niður í 2-2 jafntefli.

Karólína Lea fór af velli á 65. mínútu þegar staðan var orðin 2-2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×