Hinn stóri pakki ósýnilegrar reynslu Matthildur Björnsdóttir skrifar 23. september 2024 18:02 Hinn stóri pakki ósýnilegrar reynslu hefur verið reynsla margra fyrir tíma leyfis til tjáskipta um erfiða reynslu. Veruleikamynd til að útskýra sig þegar dýpt tilfinninga var ekki til í málinu heldur. Það varð þá til þess að mikið af reynslu mannvera fór í geymslu djúpt í kerfum þeirra. Það gerist þegar, og af því að: Viðkomandi einstaklingur hafði ekki baklands styrk til að standa upp fyrir sér gegn slæmum orðum, heilaþvotti og kröfu um þöggun. Hér hef ég komið upp með nýtt orð um þesskonar atvik þegar mjög slæm orð hafa verið sögð við mannveru sem hafði ekkert bakland til að snúa áhrifum þeirra við. Það sem var lært meira en hálfri öld síðar, var að vegna orðanna missti viðkomandi rétt sinn til að finna í sér sem ung kona hvað líf hennar ætti að verða um. Það kostaði hana það: Að hún fékk ekki svigrúm fyrir það sem er atriði í öllum kvenmannslíkömum. Sem er að kerfin í konum eiga rétt á tíma og rúmi til að uppgötva hvað myndi birtast. Hvort það væri hin konum ætlaða móðurþráar upplifun tækifæri til að rísa. Eða ef líf viðkomandi konu ætti að snúast um önnur mikilvæg verkefni. Hvers vegna var flókið að skilgreina, en frá þunga orðanna endaði hún í vanvirku hjónabandi, þar sem tvö fín börn komu frá. En dæmið fór ekki eins og hefði átt að vera. 21. öldin veitti að lokum svör við hinum dýpri atriðum og afleiðingum Orðin höfðu sett langa þykka rennihurð upp hið innra sem var rammlæst þangað til orð utan að komu sem opnuðu hana. En orð Peter A Levine voru þau orð sem útskýrðu það í smáatriðum hvað hafði gerst. Áhrif orðanna komu svo fullkomlega skýrt og upp í ljósið við orð Peter A Levine: Að áfall sjokkeri heilann, lami tjáskipti, og frysti líkamann. Það þýðir í öðrum orðum að við árásir á rétt mannvera virki sem mikilvægum hluta sálar þeirra sé sökkt í hyldýpi í iðrum líkamans. Það var mikið sjokk að átta sig á þessu meira en hálfri öld síðar. Þegar hún sá að hún hafði verið meira sem barnapía en sönn móðir. Það voru í raun líka önnur atriði í samfélaginu sem höfðu ollið eða ýtt undir slíkt ástand. Þar sem ég veit um hliðstæðar reynslur varðandi nokkrar konur. Er að það hefur verið veruleiki þarna inni í ótal konum víða um heimsem hafi endað með það ástand í sér. Karlmenn hafa auðvitað líka fengið slíka skammta, þó að ég hafi ekki beinar sögur um það hér. En hitti mann hér sem fékk slæma útreið frá foreldrum sínum, reynsla sem hann lýsti sem kostaði hann mest sem karlkyn nýtur. Þau áhrif rændu hann stórum hluta mikilvægra tækifæra. Slíkt gerist vegna þess hve stórum og mikilvægum rétti var tekinn af þeim einstaklingum með slæmum munnlegum árásum. Þessi þrjú tilfelli eru bara smá dæmi um slíkar afleiðingar, að í þeim innri heimi sem slíkt gerist, þá virkar það sem að þykk „Rennihurð þungrar orku sjokks hafi verið sett upp og henni læst“. Í öðru tilfelli var það hreinlega allt líf einnar konu á mínum aldri áður en hún áttaði sig á áhrifum konunnar sem ól hana upp og hvað þau höfðu gert lífi hennar. Það voru hörð orð sem sú kona byrjaði að heilaþvo hana til áður en hún náði kynþroska aldri. Það var gert í þeim tilgangi að hindra hana í að læra almennt um lífið. Hún heilaþvoði hana, til að verja miklu hluta tíma lífs síns í að bíða eftir manni á Hvítum Hesti. Hlutur sem gerðist aldrei. Önnur kona hér í Ástralíu hafði sótt um háskóla í Bandaríkjunum en hélt að hún hefði ekki verið samþykkt fyrir það.Svo eftir ótal ár lærði hún að móðir hennar hafði séð bréfið og stolið því. Sem gæti hafa verið, af því að hún vildi ekki að dóttirin færi. Frá orðum Thomas Hubl, og ekki síður orðum Peter A Levine hefur mikið af því að lokum komið upp í birtuna. Frá Thomas Hubl að slíkt fari beint inn í taugakerfin og niður kynslóðirnar. Svo lýsir Peter því á þennan beina máta hvernig það gerist: Slæm reynsla sjokki heilabúið, lami tjáningu og frysti taugakerfi líkamans. Undirvitundin setur það í frysti í taugakerfunum þegar enginn möguleiki var eða er fyrir tjáningu um það sem gerðist og braut sjálfvirði manneskjunnar niður. Það er mikil vinna fólgin í að byggja slíkt upp seinna, en getur gerst með réttri hjálp, bókum og fræðslu. Uppljómun um slíkt getur samt ekki alltaf bætt fyrir tjón og missi sem slík atvik sköpuðu. Það gætu verið þúsundir einstaklinga á Íslandi að lifa frá slíkum missi. Og það hugsanlega fyrir suma án þess að muna eða gera sér grein fyrir því. Það gæti hugsanlega átt meira við fyrir og í eldri kynslóðinni sem var ung þegar viðhorf og verðgildi voru ansi hörð. Og oft fyrir að ofur einfalda tilveruna.Ekki síst slæma meðferð sem átti þá að „fyrir gefa“ sem ég upplifði á þeim árum að ætlast væri til að því væri sópað undir teppin. Og að maður ætti ekki að ætlast til betri framkomu í geranda. Nýja útgáfan af því orði, er að það eigi ekki að sópa slíku undir teppin, heldur að aðskilja sig frá eðli árásar, og vænta úrlausnar. Með meiri tólum, þekkingu, innsæi og stofnunum sem veita tilfinningalega hjálp er þá vonandi möguleiki fyrir einhverjar sem átti sig á hvað gerðist að sortera það út eins vel og hægt sé. Tjáningin er leið til losunar. Höfundur er Íslendingur sem hefur verið búsettur í Ástralíu um langan tíma. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Matthildur Björnsdóttir Mest lesið Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann Skoðun Hver er ábyrgð Icelandair? Sævar Þór Jónsson Skoðun Að búa til steind getur haft skelfilegar afleiðingar! Elínrós Erlingsdóttir Skoðun Íslenska er ekki eina málið Lilja Magnúsdóttir Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee Skoðun Dauði vefsíðunnar eins og við þekkjum hana Kristján Már Hauksson Skoðun Veistu þitt skýjaspor? Hólmfríður Rut Einarsdóttir,Þóra Rut Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason skrifar Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun Sársaukafull vaxtarmörk Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Tölum íslensku Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee skrifar Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason skrifar Skoðun Um orkuskort, auðlindir og endurvinnslu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar Skoðun Rannsökum og ræðum menntakerfið Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Horfið á möguleikana í samfélagslegri ábyrgð Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Að kjarna orku þjóðar Ísak Einar Rúnarsson skrifar Skoðun Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann skrifar Skoðun Útboð á Fjarðarheiðargöngum Hildur Þórisdóttir skrifar Skoðun Hvert á að fara með íslenskt þjóðfélag? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Svikin loforð gagnvart börnum? Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Að búa til steind getur haft skelfilegar afleiðingar! Elínrós Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hvar eru sálfræðingarnir? Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslenska er ekki eina málið Lilja Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hvar er grunnskólinn? Kristján Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Er lýðræðislegt að senda vopn til Úkraínu? Hildur Þórðardóttir skrifar Skoðun Það á ekki að vera dekur að geta sótt sér sálfræðiþjónustu Ólafía Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Um bókun 35, EES samninginn, Evrópusambandið og Bretland Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Húsnæði fyrir fólk, ekki fjárfesta Gísli Rafn Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar
Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar