Herlegheitin standa frá 16 til 19 um kvöldið þar sem boðið verður upp á bjórkynningu frá Viking, hægt verður að versla í matarvögnum fyrir framan auk þess sem valinkunnir tónlistarmenn spila lifandi tónlist fyrir gesti.
Það verða alls kyns kynningar og tilboð á vörum og þjónustu fyrirtækjanna sem standa að Bílheimum. Rúsínan í pylsuendanum verður svo málverkasýning Tolla.
Fjölbreytt þjónusta með bílatengdan rekstur
Bílheimar er nýr kjarni fyrirtækja sem hafa það sameiginlegt að bjóða öll upp á vörur og þjónustu sem tengist bílum og farartækjum á einn eða annan hátt:
Bílaforritun
Bílaforritun færir þér minni eyðslu og meira afl í bílinn. Endurupplifðu bílinn þinn.

Diesel.is bílasala
Diesel.is bílasala hefur selt yfir 100.000 bíla! Örugg bílaviðskipti í 30 ár!

Hljóðlausnir
Hljóðlausnir sérhæfa sig í hljómflutningstækjum og einangrun í allar stærðir ökutækja og heimila.

Ljósameistarinn
Ljósameistarinn selur vönduð ljós á tækið þitt, hvort sem það er jeppi, vörubíll, lyftari eða annað tæki þá er Ljósameistarinn með gott úrval ljósa fyrir allar aðstæður.

Rafmagnsbílar
Bíla-innflutningsfyrirtækið Rafmagnsbílar er með allt sem hugurinn girnist í rafbíla og plug-inn bíla á markaðnum. Auka sett af dekkjum fylgir hverjum seldum bíl hjá Rafmagnsbílum í Október.

Reykjavíkurbón
Reykjavíkurbón hefur getið sér gott orð sem ein besta bílaþvottastöð landsins.

Má því segja að Bílheimar sé himnaríki bílaáhugamannsins. Það er því um að gera að bruna niður í Bílheima á laugardaginn milli klukkan16 og 19, gera vel við sig í mat og drykk og flýja rigninguna á Októberfest inn í Bílheima. Þar er alltaf sól og sumar.