Innherji

Fram­taks­sjóðurinn VEX fer fyrir kaupum á sjö­tíu prósenta hlut í Kaptio

Hörður Ægisson skrifar
Kaptio er með höfuðstöðvar í Kópavogi en um 70 manns starfa hjá hugbúnaðarfyrirtækinu.
Kaptio er með höfuðstöðvar í Kópavogi en um 70 manns starfa hjá hugbúnaðarfyrirtækinu.

Framtakssjóður í rekstri VEX, ásamt meðal annars stofnendum hugbúnaðarfyrirtækisins Annata, hafa gengið frá kaupum á samtals um 70 prósenta hlut í Kaptio. Á meðal helstu seljenda á hlutum sínum eru sjóðurinn Frumtak II og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins en áætlanir gera ráð fyrir að Kaptio muni velta meira en einum milljarði í ár.

Kaptio er alþjóðlegt hugbúnaðarfyrirtæki, stofnað 2012 og einnig með starfsemi í Bretlandi og Kanada, sem þróar og selur bókunarhugbúnað fyrir ferðaþjónustu. Viðskiptavinir félagsins eru í flestum tilfellum stór alþjóðleg ferðaþjónustufyrirtæki sem selja og reka sérferðir, hópaferðir, skemmtiskipa- og lestarferðir, þar sem hugbúnaður Kaptio er grunnundirstaða í rekstri fyrirtækjanna.

Í tilkynningu vegna kaupanna kemur fram að VEX II, fimmtán milljarða framtakssjóður sem var stofnaður um mitt þetta ár, leiði fjárfestinguna í Kaptio. Aðrir fjárfestar sem koma að kaupunum er meðal annars Birgir Ragnarsson, Björn Karlsson og Jóhann Ólafur Jónsson, stofnendur hugbúnaðarfyrirtækisins Annata, en sjóðurinn VEX I keypti tæplega helmingshlut í Annata í ársbyrjun 2022.

Við komum inn sem kjölfestufjárfestar og styðjum við sýn stjórnenda sem felur meðal annars í sér aukna sókn í sölu- og markaðsstarfi.

Ásamt vísisjóðnum Frumtak II og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins (NSA) er Arnar Laufdal Ólafsson, annar af stofnendum Kaptio, í hópi stærstu seljenda í viðskiptunum. Frumtak II hefur verið stærsti hluthafinn í Kaptio með um þriðjungshlut á meðan NSA og Arnar Laufdal, í gegnum félagið sitt ACAP, áttu hvor um sig um 17 prósenta hlut.

Ásamt sölu á hlutum fjárfestanna þá mun Kaptio einnig gefa út nýtt hlutafé fyrir um 340 milljónir króna.

Ekki er upplýst um kaupverðið á sjötíu prósenta hlutnum í Kaptio. Fram kemur í tilkynningunni að velta félagsins, sem er með um 70 starfsmenn í vinnu, sé áætluð um 1,1 milljarður króna á þessu ári en tveir þriðju hluti tekna eru áskriftartekjur. Tekjur félagsins hafa rúmlega tvöfaldast frá árinu 2022 og stórir viðskiptavinir bæst í hópinn.

Á árinu 2023 námu heildartekjur Kaptio ríflega 5,4 milljónum evra, jafnvirði um 800 milljónir króna, og félagið skilaði þá jákvæðri EBITDA upp á um 2,3 milljónir evra.

Viðar Svansson, forstjóri Kaptio.

Viðar Svansson, forstjóri Kaptio, segir fyrirtækið hafa byggt framúrskarandi bókunarlausn fyrir ferðaþjónustu og lagt grunninn að áframhaldandi þróun lausnarinnar til þess að mæta sívaxandi kröfum markaðarins.

„Félagið hefur notið stuðnings öflugra hluthafa sem nú kveðja félagið og þökkum við þeim fyrir sitt framlag og ánægjulegt samstarf. Um leið hlökkum við til að fá til liðs við okkur öfluga samstarfsaðila sem hafa reynslu af því að byggja upp og styðja við félag eins og okkar. Aðkoma þeirra er góð viðurkenning á því frábæra starfi sem starfsfólk Kaptio hefur unnið á síðustu árum og þeirri sýn sem lögð hefur verið fram,“ er haft eftir honum í tilkynningu.

Þá segir Benedikt Ólafsson, einn af eigendum hjá VEX, að starfsfólk Kaptio hafi tekist að þróa leiðandi vöru á spennandi markaði og sé í vaxtarfasa sem er rétt að hefjast. „Við komum inn sem kjölfestufjárfestar og styðjum við sýn stjórnenda sem felur meðal annars í sér aukna sókn í sölu- og markaðsstarfi auk þess að fjölga vörum og bæta við þá þjónustu sem félagið veitir.“

Fyrirtækjaráðgjöf Kviku og LOGOS lögmannsþjónusta voru ráðgjafar félagsins og seljenda í viðskiptunum. LEX lögmannsstofa veitti kaupendahópnum ráðgjöf.

Aðrar fjárfestingar fyrir utan Annata sem framtakssjóðurinn VEX hefur leitt frá árinu 2021 eru í Öryggismiðstöðinni, Opin Kerfi, Icelandic Provisions og AGR.


Tengdar fréttir

Öryggis­mið­stöðin metin á 3,8 milljarða í kaupum VEX á nærri helmings­hlut

Þegar framtakssjóðurinn VEX gekk frá kaupum á samtals um 45 prósenta hlut í Öryggismiðstöðinni um mitt árið í fyrra af breiðum hópi fjárfesta þá var allt hlutafé fyrirtækisins verðmetið á liðlega 3,8 milljarða í viðskiptunum. Sjóðurinn stóð einnig að fjárfestingu fyrir meira en 1,6 milljarða í bandaríska skyrframleiðandanum Icelandic Provision á liðnu ári sem tryggði honum yfir tíu prósenta hlut í félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×