Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar segir að það dragi úr úr úrkomu seinnipartinn og létti til á Suður- og Vesturlandi í kvöld. Þá mun bæta heldur í vind suðaustantil og má reikna með norðaustanhvassviðri þar.
Gera má ráð fyrir hita á bilinu eitt til níu stig yfir daginn, mildast suðvestantil.
„Svipað veður á morgun, en heldur hægari á norðaustanverðu landinu og skýjað en úrkomulítið. Áfram léttskýjað sunnan- og vestanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag: Norðaustan 8-15 m/s og léttskýjað, en 13-20 við suðausturströndina. Hægari norðaustantil, skýjað og úrkomulítið. Hiti 1 til 10 stig, mildast á Suðurlandi.
Á laugardag: Norðaustan 5-13, en hvassara suðaustantil. Skýjað en þurrt að kalla norðan- og austanlands, hiti um eða undir frostmarki. Bjartviðri á Suður- og Vesturlandi og hiti 0 til 5 stig.
Á sunnudag og mánudag: Norðaustan 5-13, en 13-18 við austurströndina. Dálítil él á austanverðu landinu, en bjartviðri sunnan- og vestantil. Hiti 0 til 5 stig.
Á þriðjudag: Norðan 5-10 og sums staðar lítilsháttar snjókoma, en skýjað með köflum og úrkomulítið sunnan heiða. Kólnar heldur.
Á miðvikudag: Útlit fyrir norðlæga eða breytilega átt. Skýjað fyrir norðan og dálítil snjókoma, en þurrt og bjart sunnantil. Svalt í veðri.