Meistararnir lentu undir en unnu samt

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Króatíski miðjumaðurinn Mateo Kovacic gerði gæfumuninn í leik Manchester City og Fulham í dag.
Króatíski miðjumaðurinn Mateo Kovacic gerði gæfumuninn í leik Manchester City og Fulham í dag. getty/Gareth Copley

Mateo Kovacic skoraði tvö mörk þegar Manchester City bar sigurorð af Fulham, 3-2, í ensku úrvalsdeildinni í dag.

City er í 2. sæti deildarinnar með sautján stig, einu stigi á eftir toppliði Liverpool. Fulham er í 6. sætinu með ellefu stig.

Gestirnir náðu forystunni á 26. mínútu þegar Andreas Pereira skoraði eftir skemmtilega hælsendingu Raúls Jiménez.

Sex mínútum síðar jafnaði Kovacic og hann skoraði svo annað mark sitt í upphafi seinni hálfleiks.

Jérémy Doku kom Englandsmeisturunum í 3-1 með frábæru marki á 82. mínútu Rodrigo Muniz hleypti aftur spennu í leikinn þegar hann skoraði sex mínútum síðar. En City hélt út og vann sinn fimmta deildarsigur á tímabilinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira