Skoðun

Úmbarassa-sa

Sævar Helgi Lárusson skrifar

Nú er úti norðanvindur

nú er hvítur Esjutindur

ef ég þyrfti út í bíltúr

þá er umferdin.is vefurinn

elsku besti vinurinn

Jæja góðir landsmenn, þá er vetur konungur handan hornsins. Þá veður verða válynd. Sumir myndu nú kannski halda því fram að hann hafi aldrei almennilega vikið fyrir sumrinu síðastliðið vor, en látum það liggja milli hluta.

Við hjá Vegagerðinni erum á fullu þessa dagana að skipuleggja komandi vetrarþjónustuvertíð, festa snjóruðningstennur á vörubílana og hífa saltkassana á. Þetta eru tæki, sem vegfarendur ættu að sýna óttablandna virðingu. Þau geta verið illvíg í áflogum, og ljóst hver tapar ef til áreksturs kemur. Gefum þeim gott pláss til að athafna sig. Dólum bara á eftir tækinu á nýruddum veginum frekar en að reyna áhættusaman framúrakstur. Munum bara að hafa gott bil. Stjórnun þessara vetrarþjónustækja er bæði flókin og útsýnið oft takmarkað, bæði vegna stærðar tækjanna og snjókófs sem oft myndast þegar verið er að ryðja vegina. Það vill líka svo til, að þegar þau fara á stjá, eru akstursaðstæður yfirleitt slæmar eða við það að verða slæmar.

Við sem hér á landi búum og dveljum þurfum að lifa með því veðri sem almættið velur fyrir okkur, og það skiptir ört um skoðun. Mig langar að minna á nokkur góð atriði sem mikilvægt er að hafa í huga þegar ferðast er um vegi landsins að vetri til.

  • Fylgjumst vel með veðurspá og veðurathugunum.
  • Búum okkur vel, verum á góðum dekkjum sem henta aðstæðum hverju sinni.
  • Hægjum á okkur. Veitum snjóruðningstækjum svigrúm til athafna. Betra er að fresta för einu sinni of oft en að vaða út í vondar aðstæður.
  • Síðast en ekki síst leitið upplýsinga á umferdin.is eða í síma 1777 áður en lagt er í hann.

Eflaust má lengi bæta þennan lista, en það er von mín að allir setji öryggið á oddinn í vetur og við sem sinnum vetrarþjónustu komumst klakklaust frá verki. Því miður eru óhöpp og slys nokkuð tíð í tengslum við þessa þjónustu enda vandasamt verk að halda vegum opnum og öruggum í stormasömu landi. Góð samvinna allra vegfarenda er forsenda öruggra samgangna. Ljúkum þessu á ljúfum línum skáldsins og raulum með.

Þarna sé ég hálkublett

Þá vetrardekkin undir set

Annars get ég bílinn klesst

og runnið milli akreina

Skilurðu hvað ég meina?

Höfundur er öryggisstjóri Vegagerðarinnar.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×