Íslenski boltinn

Hand­rit Ástu Eirar fékk full­komin enda­lok

Aron Guðmundsson skrifar
Ásta Eir Árnadóttir hefur lagt knattpspyrnuskóna á hilluna eftir farsælan feril sem fékk fullkomin endalok þegar að Ásta, sem fyrirliði Breiðabliks, lyfti Bestu deildar skildinu eftir að lið Breiðabliks tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn árið 2024
Ásta Eir Árnadóttir hefur lagt knattpspyrnuskóna á hilluna eftir farsælan feril sem fékk fullkomin endalok þegar að Ásta, sem fyrirliði Breiðabliks, lyfti Bestu deildar skildinu eftir að lið Breiðabliks tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn árið 2024 Vísir/Einar

Eftir að hafa landað sjálfum Ís­lands­meistara­titlinum með Breiða­bliki um ný­liðna helgi, þeim þriðja á ferlinum, greindi Ásta Eir Árna­dóttir, fyrir­liði Breiða­bliks, frá því á sunnu­daginn síðast­liðinn að skórnir væru komnir á hilluna. Á­kvörðun Ástu kom vafa­laust mörgum á ó­vart en hún á þó sinn að­draganda.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að Ásta lék sinn fyrsta leik í efstu deild fyrir Breiða­blik árið 2009. Alls urðu leikirnir í efstu deild 176 talsins og Ásta lítur stolt fyrir farin veg og er þakk­lát fyrir allar sínar stundir í græna hluta Kópa­vogs. Bæði þær góðu en einnig þær erfiðu og krefjandi því tími Ástu hjá Breiða­bliki hefur ekki að­eins verið göngu­ferð í garðinum.

Hún hefur þurft að glíma við krefjandi og erfið meiðsli, upp­lifað súr töp en einnig mikla gleði­tíma og sæta sigra. Þrír Ís­lands­meistara­titlar og þrír bikar­meistara­titlar eru vitnis­burðir þess. Ásta skilur eftir sig skarð sem yrði erfitt að fylla fyrir hvaða lið sem er.

„Ég byrjaði að­eins að pæla í þessu rétt fyrir tíma­bilið,“ segir Ásta Eir við í­þrótta­deild Stöðvar 2 um að­draganda á­kvörðunar sinnar að leggja knatt­spyrnu­skóna á hilluna.

Klippa: Handrit Ástu Eirar fékk fullkomin endalok

„Þá fann ég fyrir til­finningu á þá leið að ég gæti mögu­lega verið til­búin í að leggja skóna á hilluna. Að þetta yrði mitt síðasta tíma­bil. Ég hins vegar hugsaði þó alltaf fyrst að ég yrði til­búin í að gera það ef við myndum standa uppi sem tvö­faldir meistarar eða myndum alla­vega vinna titil.“

Ásta Eir hafði nánustu fjöl­skyldu sína vita af því hvaða til­finningar væru að bærast um innra með sér varðandi mögu­leg enda­lok ferilsins. Breiða­blik komst í úr­slita­leik Mjólkur­bikarsins en laut þar í lægra haldi gegn Val.

„Þá fékk ég þá spurningu frá mínum nánustu sem vissu stöðuna á mér hvort ég ætlaði að endur­hugsa þetta eitt­hvað.“

En það var á þeim tíma­punkti sem Ásta fór að sjá hlutina öðru­vísi.

„Þetta snýst ekki bara um titla. Þetta er bara á­kvörðun leik­mannsins og ég byrjaði þá virki­lega að fara inn í alla leiki til þess að njóta. Hélt þessu leyndu lengi en er mjög sátt með þessa á­kvörðun mína. Auð­vitað endaði þetta hand­rit full­kom­lega. Með Ís­lands­meistara­titli eins og ég hafði séð fyrir mér. Það gerir þetta enn þá betra. Ég er mjög sátt í hjartanu eftir þetta allt saman.“

Við­talið við Ástu Eir í heild sinni þar sem farið er nánar í saumana á á­kvörðun hennar, tímann hjá Breiða­bliki, úr­slita­leikinn gegn Val sem og fram­haldið hjá henni og ástina á Breiða­bliki má sjá hér fyrir ofan. Þá má nálgast við­talið í hlað­varps­formi hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×