Lífið

Stofnar eigin út­gáfu og byrjar í ruslinu

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Halldór byrjar söguna daginn sem Neyðarlögin voru sett í Hruninu, daginn sem Geir H. Haarde bað Guð að blessa Ísland.
Halldór byrjar söguna daginn sem Neyðarlögin voru sett í Hruninu, daginn sem Geir H. Haarde bað Guð að blessa Ísland.

Nýjasta skáldaga Halldórs Armands, Mikilvægt rusl, kemur út fimmtudaginn 10. október. Bókin fjallar um sorphirðumenn í Hruninu og er gefin út af nýstofnaðri útgáfu Halldórs sem heitir Flatkakan útgáfa.

„Það hefur lengi kitlað mig að gefa út mína eigin bók. Ég elska flatkökur og vildi nefna útgáfuna eftir einhverju sem mér er mjög hlýtt til,“ segir Halldór um sjálfsútgáfuna. 

Sagan hefst á „Guð blessi Ísland“-daginn 6. október 2008 þegar afskorið mannsnef finnst í ruslatunnu fyrir utan glæsihýsi í Þingholtunum.

Uppgötvunin setur af stað atburðarás þar sem öskukallinn Gómur Barðdal, lúgustelpan Zipo og seinheppna skáldið Geir Norðann taka saman höndum við að finna eiganda nefsins. Við það flækjast þau inn í samsæri sem teygir anga sína upp í efstu lög íslensks samfélags.

Ermolinski á posanum og hugvekja um sorp

Útgáfuhóf bókarinnar verður haldið í húsakynnum Góða hirðisins að Köllunarklettsvegi 1 milli klukkan 17-19 á fimmtudag. Lesið verður upp úr bókinni og mun föðurbróðir höfundar, Þórður Sverrisson, augnlæknir og fyrrverandi öskukukall, flytja stutta hugvekju um sorp. 

Boðið verður upp á léttar veitingar og bókin seld á tilboðsverði. Pavel Ermolinski, fyrrverandi körfuboltamaður og sölustjóri Flatkökunnar, verður á posanum. 

Hægt er að forpanta bókina á halldorarmand.is á tíu prósenta afslætti með afsláttarkóðanum RUSL10 sem rennur út á miðnætti 9. október.

„Ég hlakka til að geta stýrt ferðinni sjálfur og vil geta komið bókinni í sem flestar hendur, til dæmis með því að veita bókaklúbbum, námsmönnum og sorphirðustarfsfólki góð kjör,” segir Halldór um sitt mikilvæga rusl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×