Veður

Snjó­koma og hálka á höfuð­borgar­svæðinu á fimmtu­dag

Lovísa Arnardóttir skrifar
Ekki liggur fyrir hversu mikið mun snjóa en veðurfræðingur segir að það gætu verið nokkrir sentímetrar.
Ekki liggur fyrir hversu mikið mun snjóa en veðurfræðingur segir að það gætu verið nokkrir sentímetrar. Vísir/Vilhelm

Á fimmtudagsmorgun er líklegt að íbúar á Suður- og Vesturhluta landsins, þar með talið höfuðborgarbúar, muni vakna með nokkurra sentímetra snjó á götunum. Á Norður- og Norðausturlandi verða él þannig meira og minna allt landið verður hvítt að einhverju leyti. Það byrjar að snjóa aðfaranótt fimmtudags og verður líklega allt farið um kvöldið eða daginn eftir.

Samkvæmt veðurspá Veðurstofunnar verður þá norðan og norðaustan 8 til 15 metrar á sekúndu og víða dálítil snjókoma eða slydda. Hiti verður líklega á bilinu 0 til 4 stig við suður- og vesturströndina að deginum, en annars frost 0 til 5 stig.

Í veðurspá veðurfræðingsins Einars Sveinbjörnssonar kemur fram að það muni snjóa mest í austurhverfunum á höfuðborgarsvæðinu, sem standa hærra. Þessu muni fylgja hálka og ekki síður á gangstéttum og útivistarstígum. Á Norður- og Norðausturlandi muni einnig gera snjóföl á láglendi en ekki fyrr en seinnipartinn.

Byrjar á Hellisheiði í dag

Kristín Hermannsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofunni, segir að einnig muni snjóa í dag. Aðallega á Hellisheiði og á fjallvegum í kringum okkur.

„Það verður ekki í byggð í dag en á fimmtudaginn lítur út fyrir að það verði snjókoma eða slydda í byggð. Þetta gætu verið einhverjir sentímetrar þegar við vöknum á fimmtudagsmorgun,“ segir Kristín.

Hún segir þetta ekki óvanalegt fyrir þennan árstíma.

„Þetta byrjar oft í október. Þetta er ekki óvenjulegt. Það hefur snjóað einhvern tímann í öllum mánuðum ársins. En það er núna að koma ákveðinn bakki úr vestri og okkur sýnist að þetta verði snjókoma frekar en slydda,“ segir hún og að snjórinn verði líklega farinn á föstudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×