Innherji

Telur „tölu­verða“ orð­spors­á­hættu fyrir Eik að fara í út­leigu á í­búðar­hús­næði

Hörður Ægisson skrifar
Bjarni K. Þorvarðarson er stjórnarformaður Eikar. Stjórn fasteignafélagsins telur að yfirtökutilboðsverð Langasjávar sé of lágt þegar það er borið saman við vænt virði framtíðar sjóðstreymis og arðgreiðslna fasteignafélagsins.
Bjarni K. Þorvarðarson er stjórnarformaður Eikar. Stjórn fasteignafélagsins telur að yfirtökutilboðsverð Langasjávar sé of lágt þegar það er borið saman við vænt virði framtíðar sjóðstreymis og arðgreiðslna fasteignafélagsins.

Stjórn Eikar telur að gengið í yfirtökutilboði Langasjávar í allt hlutafé fyrirtækisins sé of lágt, meðal annars á grundvelli greininga frá óháðum aðilum sem verðmeta það á tugprósenta hærra verði, enda þótt það sé „nokkur samhljómur“ í áformum fjárfestingafélagsins og Eikar. Stjórnin leggst gegn hugmyndum um að Eik fari í útleigu húsnæðis til almennings en arðsemi ef slíkri starfsemi sé „mun lægri“ og henni fylgi orðsporsáhætta sem gæti dregið úr áhuga sumra fjárfesta á félaginu.


Tengdar fréttir

Lækkar verð­mat sitt á Eik en er samt tals­vert yfir til­boðs­verði Langa­sjávar

Dekkri rekstraráætlun og lakari sjóðstaða þýðir að verðmatsgengi á Eik hefur verið lækkað nokkuð frá fyrra mati, samkvæmt nýrri hlutabréfagreiningu, en þrátt fyrir það er fasteignafélagið metið á tugprósenta hærra verði borið saman við gildandi yfirtökutilboð Langasjávar í alla útistandandi hluti. Hlutabréfaverð Eikar hækkaði skarpt í Kauphöllinni í dag og er núna um tíu prósentum yfir tilboðsverði fjárfestingafélagsins.

Ó­lík­legt að stór­ir hlut­haf­ar sam­þykk­i yf­ir­tök­u­til­boð í Eik

Stjórnandi lífeyrissjóðs telur ólíklegt að hluthafar Eikar muni almennt samþykkja fyrirhugað yfirtökutilboð í fasteignafélagið miðað við núverandi tilboðsgengi. Mögulega takist Langasjó að eignast yfir 34 prósenta hlut og við það verði fjárfestingafélagið að samþykkja allar stærri ákvarðanir á vettvangi hluthafa Eikar til að þær fái brautargengi. Verðbréfamiðlari spyr hvers vegna hluthafar ættu að samþykkja tilboð á svipuðu gengi sem Langisjór hafi í reynd hafnað fyrir skömmu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×