Stjarnan fær akureyskan markvörð frá Grindavík Sindri Sverrisson skrifar 8. október 2024 13:22 Aron Dagur Birnuson er boðinn velkominn í Stjörnuna. @fcstjarnan Stjarnan hefur fengið hinn 25 ára gamla markvörð Aron Dag Birnuson til sín en hann hefur síðustu fjögur ár varið mark Grindavíkur í Lengjudeildinni.
Skagamaðurinn Árni Snær Ólafsson hefur verið aðalmarkvörður Stjörnunnar síðustu tvö ár en hann fær nú samkeppni frá Aroni Degi sem kveðst afar spenntur fyrir komunni í Garðabæinn. „Ég hafði mikinn áhuga að ganga til liðs við Stjörnuna eftir að hafa horft á þá spila einn flottasta fótbolta á landinu undanfarin ár. Ég er að koma inn í flottustu aðstöðu á landinu með flottustu þjálfara landsins og tel að ég eigi eftir að bæta mig helling hérna. Ég er alltaf spenntur á að takast á við ný verkefni og sérstaklega svona krefjandi verkefni þar sem það er búist við miklu af liði eins og Stjörnunni. Áfram Stjarnan!“ er haft eftir Aroni Degi í tilkynningu Stjörnunnar. Aron Dagur er uppalinn hjá KA á Akureyri og lék þar sína fyrstu leiki í meistaraflokki árið 2016, þá aðeins sautján ára gamall. Hann hefur samtals leikið átján leiki í efstu deild en 85 leiki í næstefstu deild og einnig 22 leiki fyrir Völsung í C-deild sumarið 2018. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Stjarnan tilkynnir um liðsstyrk en félagið hefur einnig tryggt sér atvinnumanninn og HM-farann Samúel Kára Friðjónsson.
Stjarnan Besta deild karla UMF Grindavík Mest lesið Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Fótbolti Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Fótbolti „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Enski boltinn Uppgjörið: Njarðvík 84-75 Stjarnan | Njarðvík tekur foyrsuna í kaflaskiptum leik Körfubolti Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Enski boltinn „Ekki tími ársins til að fara inn í einhverja skel“ Körfubolti Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Enski boltinn „Þetta var alveg orðið smá stressandi“ Sport Þjálfari Sveindísar segir starfi sínu lausu Fótbolti „Verðum að nýta hvert einasta tækifæri sem við fáum“ Körfubolti Fleiri fréttir Stúkan fær liðsstyrk í þremur kanónum Besta auglýsing Fram: Rúnar kann öll vafasömu trixin „Var meira fyrir að borða nutella úr krukkunni og spila tölvuleiki“ „Stærsta í þessu er ef Rúnar Már nær að spila meira“ Besta-spáin 2025: Vindur í Skagaseglin Heimsóttu Hásteinsvöll: „Það eru ekkert allir sáttir við þetta“ Vel vopnaðir tökumenn: „Djöfull er þetta góður klútur“ „Maður er pínu hræddur fyrir þeirra hönd“ Besta-spáin 2025: Að finna sér nýjan samastað í tilverunni „Gerðum gott úr þessu“ Uppgjörið: Breiðablik - KA 3-1 | Breiðablik er meistari meistaranna Herra Víkingur kvaddur: „Rosalega gott tækifæri til að hætta“ Skelfileg meiðsli Stefáns Árna: „Fóturinn var í mjög ljótri stöðu“ Frumraun Gylfa í beinni í kvöld „Mér finnst þeir geta farið í báðar áttir“ Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Sænska stórveldið keypti Ísabellu Söru Grindvíkingar sækja um í hamfarasjóð UEFA Heimi finnst aldursumræðan algjörlega galin Ný treyja KR kynnt með pompi og prakt „Þetta er veikara lið“ Besta-spáin 2025: Leiðin orðin grýttari „Mjög krefjandi tímabil framundan“ „Lærir með hverju árinu hvað maður á að hlusta á og hvað ekki“ Besta-spáin 2025: Ætla að brosa aftur í mótslok Aftur hefur KR leik í Laugardalnum Nýi markvörður KA kom snemma inn af bekknum í fyrsta leik Ísabella Sara sögð á leið til Rosengård Besta auglýsing Aftureldingar: „Þetta er enginn helvítis Pizzabær“ „Veturinn eins og best verður á kosið“ Sjá meira