Sport

Hundrað og fimm­tíu kíló en fer auð­veld­lega í heljar­stökk

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Khalen Saunders er hér ásamt besta leikmanni deildarinnar, Patrick Mahomes.
Khalen Saunders er hér ásamt besta leikmanni deildarinnar, Patrick Mahomes. vísir/getty

Khalen Saunders hjá New Orleans Saints stal senunni í síðustu umferð NFL-deildarinnar.

Hann stal þá boltanum í leik gegn meisturum Kansas City Chiefs. Ekki bara það heldur hélt hann af stað með boltann.

Siglingin á stóra manninum vakti gríðarlega athygli enda ekki algengt að sjá svona stóran mann hlaupa þetta hratt.

Þeir sem til þekkja voru þó ekki hissa enda er Saunders mikill íþróttamaður og hefur margoft sýnt tilþrif sem aðra menn í hans þyngdarflokki getur aðeins dreymt um að gera.

Hann fer til að mynda auðveldlega í heljarstökk. Strákarnir í Lokasókninni kíktu á kappann eins og sjá má hér að neðan.

Klippa: Lokasóknin: Stóri maðurinn á fullri ferð



Fleiri fréttir

Sjá meira


×