Rafíþróttir

Þrífram­lengt í „gjör­sam­lega svaka­legum“ leik

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Veca komst alla leið á seiglunni og vann Sögu 2-0 í hörkuspennandi viðureign þar sem þurfti að þríframlengja seinni leik liðanna.
Veca komst alla leið á seiglunni og vann Sögu 2-0 í hörkuspennandi viðureign þar sem þurfti að þríframlengja seinni leik liðanna.

„Hvað vorum við að horfa á hérna?“ spurði Einar Ragnars­son, hristur og hrærður, eftir beina lýsingu hans og Tómasar Jóhanns­sonar á æsi­spennandi, þrífram­lengdum leik Sögu og Veca í 6. um­ferð Ljós­leiðra­deildarinnar í Coun­ter Stri­ke í gær.

Sjöttu um­­­­­­­­­ferð Ljós­­­­­leiðara­­­­­deildarinnar í Coun­ter Stri­ke lauk á fimmtudagskvöld með þremur leikjum þar sem allra augu beindust að hörkuspennandi viðureign Sögu og Veca sem lauk með þríframlengdum leik í Inferno þar sem Veca hafði loks sigur 22-19.

Veca hafði áður lagt andstæðingana í Sögu að velli í Nuke í fyrri leiknum sem einnig var æsispennandi. Lokatölur þar voru 13-10 fyrir Veca sem vann umferðina því 2-0.

Úrslit leikja í 6. umferð:

Rafík - Þór             0-2

Dusty - Ármann   2-0

ÍA - Höttur            0-2

Saga - Veca           0-2

Kano - Venus       2-0

„Þeir vinna þennan leik ótrúlega. Hvað vorum við að horfa á hérna?“ sagði Einar, um sína menn í Veca, eftir seinni leikinn og bætti við að hann væri í sjokki. Tómas sagði að leikurinn hefði einfaldlega verið „gjörsamlega svakalegur.“

„Ég er í sjokki,“ var meðal þess sem Einar Ragnarsson hafði til málanna að leggja þegar hann og Tómas Jóhannsson fóru yfir leiki Sögu og Veca í gærkvöld.

Þá bætti hann við að Veca hafi komist þetta á hreinni og klárri seiglu. „Þessi leikur var tapaður örugglega svona ellefu sinnum hjá Veca en einhvern veginn klóruðu þeir sig til baka.“

Sjöunda umferð Ljósleiðaradeildarinnar hefst á þriðjudaginn 15. október ananrs vegar með viðureign Dusty og Hattar og Kano og ÍA hins vegar. Umferðin klárast síðan á fimmtudeginum þegar Saga mætir Ármanni, Rafík og Venus eigast við og Þór tekur slaginn við Veca.

Staðan í Ljósleiðaradeildinni eftir 6 umferðir.

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×