Innlent

Ráð­herrann gekk inn í stækan viskíþef í flugstjórnarklefanum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Stefán Jónsson, fyrrverandi flugvélstjóri, hlýðir á Gunnar Guðjónsson, fyrrverandi flugstjóra, lýsa því þegar ráðherra samgöngumála gekk inn í viskímettaðan flugstjórnarklefann.
Stefán Jónsson, fyrrverandi flugvélstjóri, hlýðir á Gunnar Guðjónsson, fyrrverandi flugstjóra, lýsa því þegar ráðherra samgöngumála gekk inn í viskímettaðan flugstjórnarklefann. Egill Aðalsteinsson

Sagan af ráðherranum sem kom inn í viskí-mettaðan flugstjórnarklefann, af jólatrénu sem festist á stélinu og af magalendingu Loftleiðavélarinnar í New York eru meðal þeirra sem flugfólk deilir með okkur.

Í þættinum Flugþjóðin á Stöð 2, sem ber yfirskriftina Fólkið í fluginu, er rætt við fjölda núverandi og fyrrverandi starfsmanna úr fluggeiranum sem segja okkur nokkrar mergjaðar flugsögur.

Stefán Jónsson, fyrrverandi flugvélstjóri, lýsir þeim ótrúlega atburði þegar jólatré festist á stéli Flugfélagsvélar í flugi yfir Grænlandi.

Erla Hafrún Guðjónsdóttir rifjaði upp magalendingu í New York vorið 1970.Egill Aðalsteinsson

Erla Hafrún Guðjónsdóttir, fyrrverandi flugfreyja, segir frá magalendingu á CL-44 Rolls Royce-vél Loftleiða, Bjarna Herjólfssyni, í New York vorið 1970 þegar annað hjólastellið festist ekki niðri. Tvöhundruð manns voru um borð, 189 farþegar og ellefu manna áhöfn.

„Svo var bara sett kvoða á brautina og undirbúið,“ segir Erla Hafrún.

Loftleiðavélin Bjarni Herjólfsson á maganum á Kennedy-flugvelli.Erla Hafrún Guðjónsdóttir

Í þættinum eru sýndar ljósmyndir sem Erla tók af flugvélinni eftir magalendinguna á Kennedy-flugvelli en þær hafa ekki áður birst opinberlega. Þær sýna vel skemmdir á flugvélinni og hversu giftusamlega tókst til að engin alvarleg meiðsl urðu á fólki.

„Ég eiginlega brotnaði ekki fyrr en ég kom heim og hitti manninn minn og son minn,“ rifjar Erla upp.

Skrúfublöðin á vinstri vængnum beygluðust.Erla Hafrún Guðjónsdóttir

Við heyrum einnig flugfreyjurnar segja frá atvikinu þegar þær lentu í loftgati í aðflugi að Keflavík. Svo skyndilega féll flugvélin niður að ein flugfreyjan hentist harkalega upp og braut skilti í loftinu.

Gunnar Guðjónsson, fyrrverandi flugstjóri, segir skondna sögu úr flugferð frá Glasgow með samgönguráðherrann Halldór E . Sigurðsson um borð. Sammælst hafði verið um það að ráðherrann fengi að kíkja frammí til flugmannanna á leiðinni. Þá vildi svo óheppilega vildi til að viskípeli brotnaði óvart inni í flugstjórnarklefanum einmitt þegar ráðherrann mætti.

Boeing 727-einkaþotan sem þeir Gylfi Magnússon og Stefán Jónsson flugu um sex vikna skeið.Gylfi Magnússon

Gylfi Magnússon, fyrrverandi flugstjóri, segir frá ævintýraferðalagi sem dúkkaði upp með litlum fyrirvara þegar milljarðamæring vantaði flugmenn á þotuna sína, Boeing 727. Hann og Stefán Jónsson tóku að sér verkefnið sem teygðist upp í sex vikur og fór um Austurlönd fjær og Ástralíu.

Hér má sjá níu mínútna myndskeið af flugsögum:

Í þættinum rýnum við einnig í flugáhugann á Íslandi og spyrjum hversvegna Íslendingar urðu flugþjóð.

Hér má sjá sjö mínútna myndskeið þar sem þessu er velt upp:

Þátturinn verður endursýndur á Stöð 2 í dag, sunnudag, klukkan 16:55. Áskrifendur Stöðvar 2 og Stöðvar 2+ geta horft á alla þáttaröðina hvar og hvenær sem er í streymisveitu Stöðvar 2.

Hér er kynningarstikla þáttaraðarinnar:


Tengdar fréttir

Þú finnur Íslendinga út um allan heim í fluginu

„Þetta er dálítið magnað hvað þú rekst á Íslendinga víða í þessum alþjóðlega flugrekstri. Þeir eru eiginlega út um allt. Þú rekst á Íslendinga ótrúlega víða,“ segir Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta.

Flugfreyjurnar segjast eiga sinn þátt í flugævintýrinu

Fyrrverandi flugfreyjur, sem voru fyrsta kynslóðin sem gerðu starfið að ævistarfi, segjast ekki síður en karlarnir hafa átt þátt í að skapa íslenska flugævintýrið. Í þættinum Flugþjóðin er rætt við fjölda núverandi og fyrrverandi starfsmanna úr fluggeiranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×