Snorri & Dvergarnir, efsta liðið í 1. riðli Litlu-Kraftvéladeildarinnar í Dota 2, mætti því neðsta, Coup de Brains, í 5.umferð í gær og eins og ætla mátti reyndust dvergarnir og Snorri of stór biti að kyngja og unnu viðureignina 2-0.
Staða efstu liða í riðlinum er þá þannig að Snorri & Dvergarnir eru í 1. sæti með 8 stig eftir 10 leiki en á eftir koma Kuti með 5 stig úr 6 leikjum og Lína & Durtarnir með 5 stig eftir 8 leiki.
Alltof heimskir eru síðan ekki vitlausari en svo að þeir tróna á toppi 2. riðils með Hendakallana á bakinu en bæði lið eru með 7 stig úr 10 leikjum. TSR Akademían vermir síðan 3. sætið með 5 stig úr 6 leikjum.