Viðskipti

Rúnar ráðinn að­stoðar­fram­kvæmda­stjóri

Árni Sæberg skrifar
Rúnar Ágúst Svavarsson, nýr aðstoðarframkvæmdastjóri Hreint.
Rúnar Ágúst Svavarsson, nýr aðstoðarframkvæmdastjóri Hreint. Hreint

Ræstingafyrirtækið Hreint hefur ráðið Rúnar Ágúst Svavarsson sem aðstoðarframkvæmdastjóra. Um er að ræða nýja stöðu innan félagsins, en Rúnar hefur verið lykilmaður í rekstri Hreint undanfarin tólf ár og stýrt fjölmörgum mikilvægum verkefnum innanhúss, ásamt því að hafa starfað þvert á svið hjá Hreint, síðast sem sviðsstjóri þróunar- og markaðssviðs.

Í fréttatilkynningu um ráðninguna segir að Rúnar hafi á árinu lokið MBA-námi við Háskólann í Reykjavík með áherslu á stefnumótun, rekstur og leiðtogastjórnun, sem styðji frekar við vöxt og framþróun Hreint. Einnig sé hann með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík. 

Ráðning hans í stöðuna sé mikilvægur liður í áætlunum fyrirtækisins um frekari stækkun og þróun, en nýlega hafi fyrirtækið flutt höfuðstöðvar sýnar í nýtt og stærra húsnæði í Kópavogi og slík hið sama standi til á Akureyri á komandi misserum.

„Ég er afar spenntur fyrir nýju hlutverki og þeirri áskorun að taka þátt í næstu skrefum Hreint á spennandi vegferð. Við erum að vaxa hratt og ég hlakka til að leggja mitt af mörkum til að styðja við áframhaldandi þróun fyrirtækisins,“ er hafti eftir Rúnarr Ágústi.

„Við erum mjög ánægð með að hafa Rúnar áfram með okkur í nýrri stöðu. Hann hefur lengi verið hluti af okkar leiðtogateymi og þekkir fyrirtækið út og inn. Rúnar hefur komið að stórum verkefnum sem hafa skipt sköpum fyrir stækkun Hreint, og MBA-námið samræmist vel framtíðarstefnu okkar,“ er haft eftir Ara Þórðarsyni, framkvæmdastjóra Hreint. 

Árið 2024 hafi verið eitt af þeim allra besta í sögu Hreint, þar sem fyrirtækið hafi séð tuttugu prósenta vöxt. Með ráðningu Rúnars sé félagið betur í stakk búið til að takast á við framtíðaráform og áframhaldandi vöxt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×