Enski boltinn

Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sir Alex Ferguson stýrði Manchester United á árunum 1986-2013. Á þeim tíma vann liðið 38 titla.
Sir Alex Ferguson stýrði Manchester United á árunum 1986-2013. Á þeim tíma vann liðið 38 titla. getty/James Gill

Forráðamenn Manchester United hafa bannað Sir Alex Ferguson, sigursælasta knattspyrnustjóra í sögu félagsins, og öðrum í fótboltastjórn þess að fara inn í búningsklefann á Old Trafford eftir leiki.

Í gær var greint frá því að nýir minnihlutaeigendur United, INEOS sem Íslandsvinurinn Sir James Ratcliffe er í forsvari fyrir, hafi sagt upp samningi Fergusons við félagið.

Síðan Skotinn hætti sem stjóri United 2013 hefur hann verið sendiherra og stjórnandi hjá félaginu og var vel launaður sem slíkur. Ratcliffe og félagar ákváðu hins vegar að segja manninum sem vann 38 titla á 26 árum hjá United upp.

Ekki nóg með að Ferguson hafi svo gott sem verið rekinn frá United þá má hann ekki lengur fara inn í búningsklefann á Old Trafford eftir leiki. Daily Mail greinir frá. United hafnar fréttunum en segir að það ríki skilningur um hverjir fara inn í klefann eftir leiki.

Fótboltastjórn United er aðskilin frá aðalstjórn félagsins en hlutverk hennar er fyrst og fremst táknrænt. Auk Fergusons voru David Gill og Mike Edelson, Maurice Watkins og Sir Bobby Charlton heitnir ávallt velkomnir inn í klefa United eftir leiki.

Algjört hneyksli

Ákvörðun INOES-manna að reka Ferguson hefur ekki mælst vel fyrir. Eric Cantona, sem vann fjóra Englandsmeistaratitla með United á 10. áratugnum, er meðal þeirra sem er æfur yfir ákvörðuninni og segir Ratcliffe og félaga hafa sýnt Ferguson mikla vanvirðingu.

„Sir Alex Ferguson ætti að fá að gera það sem hann lystir hjá félaginu þangað til að hann deyr. Þvílíkur skortur á virðingu. Þetta er algjört hneyksli. Sir Alex Ferguson verður stjórinn minn að eilífu! Og ég hendi þeim öllum í risapoka af skít,“ skrifaði Cantona á Instagram.

INOES hefur ráðist í viðamikinn niðurskurð hjá United en félagið tapaði 113,2 milljónum punda á síðasta tekjuári. Meðal annars var 250 starfsmönnum United sagt upp, þvert á deildir félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×