Innlent

Eldur kviknaði í bíl­skúr

Árni Sæberg skrifar
Slökkvilið að störfum á Hólavallagötu.
Slökkvilið að störfum á Hólavallagötu. Vísir

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað til síðdegis vegna bílskúrs sem kviknaði í í Vesturbæ Reykjavíkur.

Vísi bárust ábendingar um talsverðan viðbúnað slökkviliðs í Vesturbænum um klukkan 16. 

Eldurinn kviknaði á Hólavallagötu.Hilma Sveinsdóttir

Að sögn Slökkviliðsins reyndist útkallið þó vegna elds í bílskúr, sem búið sé að slökkva og nú sé unnið að reykræstingu.

Veistu meira um málið? Áttu myndefni af svæðinu? Sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×