Lífið

Bölvað ves að ganga blindur um Ber­lín

Stefán Árni Pálsson skrifar
Erfitt að vera blindur í Berlín.
Erfitt að vera blindur í Berlín.

Í síðasta þætti af 1 Stjarna á Stöð 2 fór þeir Dóri og Steindi til Berlínar til að njóta alls þess versta sem borgin hefur upp á að bjóða.

Eitt af því var að fara í skoðunarferð um borgina blindandi. Sem var heldur skrautleg ferð og fær ekki góða dóma á veraldarvefnum. Ferð þar sem þú snertir og lyktar af Berlín en sérð hana ekki.

Þættirnir eru á dagskrá á Stöð 2 á föstudagskvöldum en þeir fjalla um þessa tvo æskuvini sem fara í spreng hlægilegt ferðalag um heiminn. Þar prófa þeir verstu staði í heimi. Dóri segist hafa fengið nóg af Steinþóri og lýsir honum sem skelfilegum ferðafélaga á meðan Steindi heldur ekki vatni yfir Dóra.

Hér að neðan má sjá brot úr síðasta þætti.

Klippa: Gengu blindir um Berlín





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.