Innherji

Hagar færa út kvíarnar og kaupa fær­eyskt verslunar­fé­lag fyrir um níu milljarða

Hörður Ægisson skrifar
Finnur Oddsson, forstjóri Haga, segir að með kaupunum a SMS skapist möguleikar á að auka hagkvæmni í rekstri beggja félaga, bæta vöruúrval og þjónustu.
Finnur Oddsson, forstjóri Haga, segir að með kaupunum a SMS skapist möguleikar á að auka hagkvæmni í rekstri beggja félaga, bæta vöruúrval og þjónustu. Samsett

Smásölurisinn Hagar hefur náð samkomulagi við eigendur verslunarfélagsins P/F SMS í Færeyjum, sem rekur meðal annara átta Bónusverslanir, fyrir jafnvirði meira en níu milljarða króna í því skyni að auka umsvif félagsins í dagvöruverslun. Hinir færeysku eigendur SMS fá að hluta greitt með bréfum í Högum en fjárfestar taka vel í tíðindin og hlutabréfaverðið hækkað skarpt í fyrstu viðskiptum í Kauphöllinni.


Tengdar fréttir

Gagn­rýnir um­bun stjórn­enda ef á­vöxtun „nær að skríða“ yfir á­hættu­lausa vexti

Stærsti hluthafi Haga var gagnrýninn á „umfang og útfærslu“ nýs kaupréttarkerfis smásölurisans og beindi þeirri spurningu til stjórnar félagsins á nýafstöðnum hluthafafundi af hverju hún teldi rétt að umbuna lykilstjórnendum með kaupréttum ef þeir næðu að skila ávöxtun sem væri vel undir ávöxtunarkröfu ríkisbréfa. Tillaga stjórnar Haga, sem er að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða, að kaupréttarkerfi var samþykkt með nokkuð naumum meirihluta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×