Veður

Rigning sunnan­til og víða snjó­koma norðan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður á bilinu þrjú til átta stig í dag.
Hiti verður á bilinu þrjú til átta stig í dag. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt og að vindur nái sér ekki á strik og verði á bilinu fimm til þrettán metrar á sekúndu.

Á vef Veðurstofunnar segir að það verði lengst af rigning eða súld á sunnanverðu landinu og hiti á bilinu þrjú til átta stig. Sums staðar verður snjókoma eða slydda norðantil framan af degi, en dálítil væta síðdegis og hlýnar þar einnig.

„Snýst í norðan og norðvestan 10-18 á morgun, það bætir semsagt í vindinn og mestur verður hann væntanlega með norður- og austurströndinni. Á norðanverðu landinu má búast við snjókomu eða slyddu, sums staðar jafnvel talsverð ofankoma um tíma. Dálítil rigning eða slydda suðvestantil, en þurrt suðaustanlands. Hiti frá frostmarki í innsveitum fyrir norðan, að 7 stigum á Suðausturlandi. Lægðin sem veldur veðrinu á morgun hefur síðan fjarlægst annað kvöld. Þá verður víða þurrt á landinu og frystir, auk þess útlit fyrir að það hafi lægt vestantil.

Á föstudag er síðan sunnan hvassviðri eða stormur í kortunum með rigningu og hlýnandi veðri. Það má því segja að það sé nokkuð rysjótt tíð hjá okkur um þessar mundir, eins og ekki er óalgengt á þessum árstíma,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Norðvestan 8-15 m/s, hvassast við norður- og austurströndina. Snjókoma eða slydda á norðanverðu landinu. Dálítil rigning eða slydda suðvestantil, en þurrt suðaustanlands. Hiti frá frostmarki í innsveitum fyrir norðan, að 7 stigum á Suðausturlandi. Víða þurrt og vægt frost á landinu um kvöldið og hægur vindur um landið vestanvert.

Á föstudag: Suðaustan 15-25 m/s og talsverð rigning, en úrkomuminna norðaustantil á landinu. Hlýnar, hiti 3 til 9 stig uppúr hádegi. Suðvestan 13-20 um kvöldið með skúrum sunnan- og vestanlands og kólnar heldur.

Á laugardag (fyrsti vetrardagur): Suðvestan 8-15 og skúrir eða slydduél, en bjartviðri á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 1 til 5 stig. Norðlægari og kólnar seinnipartinn með éljum á norðanverðu landinu, en þurrt sunnantil.

Á sunnudag: Ákveðin norðvestanátt með éljum á Norður- og Austurlandi, en léttskýjað sunnan- og vestantil. Frost 0 til 5 stig. Lægir allvíða um kvöldið með þurru veðri og herðir á frosti.

Á mánudag: Sunnanátt með rigningu og hlýnandi veðri, en úrkomulítið norðaustantil á landinu.

Á þriðjudag: Suðvestanátt með skúrum eða slydduéljum, en léttskýjað á austanverðu landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×