Erlent

Fyrirburinn talinn í Belgíu

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd af foreldrunum en þessi mynd af þeim mun hafa verið tekin nærri landamærum Belgíu.
Mynd af foreldrunum en þessi mynd af þeim mun hafa verið tekin nærri landamærum Belgíu. Lögreglan í Belgíu

Drengurinn Santiago, átján daga gamall fyrirburi sem tekinn var af sjúkrahúsi í París í fyrrakvöld er talinn hafa verið fluttur til Belgíu. Foreldrar drengsins tóku hann af sjúkrahúsi en sökum þess að hann er fyrirburi er talið að hann geti ekki lifað lengi án aðhlynningar heilbrigðisstarfsmanna.

Í gær var sagt að talið væri að Santiago gæti ekki lifað mikið lengur en tólf tíma utan sjúkrahúss en hann var tekinn af sjúkrahúsinu aðfaranótt þriðjudags.

Lögreglan í París hefur fellt úr gildi sérstakt viðbragðsstig og hefur lögreglan í Belgíu tekið við rannsókn málsins, samkvæmt frétt Le Parisien.

Foreldrarnir eru sagðir hafa smyglað Santiago af sjúkrahúsi í lítilli tösku og farið rakleiðis til Belgíu. Lögreglan í París handtók nokkra fjölskyldumeðlimi þeirra en ekkert hefur verið gefið út um af hverju þau tóku barnið af sjúkrahúsinu.

Faðir Santiago er 23 ára og móðir hans er 25. Le Parisien hefur eftir frönskum saksóknara að foreldrarnir tilheyri Rómafólki og hafi áður komist í kast við lögin. Hann vildi þó ekki fara nánar út í hvernig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×