Innherji

Af­koma Icelandair var vel undir spám grein­enda og gengið lækkaði skarpt

Hörður Ægisson skrifar
Icelandair reiknar með um 8 til 10 prósenta framboðsaukningu á næsta ári með óbreyttum fjölda flugvéla. Fjórar nýjar Airbus A321LR vélar koma í staðinn fyrir fjórar Boeing 757-vélar.
Icelandair reiknar með um 8 til 10 prósenta framboðsaukningu á næsta ári með óbreyttum fjölda flugvéla. Fjórar nýjar Airbus A321LR vélar koma í staðinn fyrir fjórar Boeing 757-vélar. Icelandair/Airbus

Minni eftirspurn á markaðnum til Íslands og lægri meðalfargjöld á flugi yfir Atlantshafið veldur því að rekstrarhagnaður Icelandair af farþegafluginu hefur skroppið saman um tæplega níutíu prósent á fyrstu níu mánuðum ársins. Uppgjör Icelandair fyrir þriðja fjórðung var nokkuð undir væntingum greinenda og fjárfesta en félagið sér fram á verulega bætta afkomu á næsta fjórðungi miðað við sama tíma í fyrra og horfurnar fyrir 2025 séu góðar samhliða því að sumir keppinautar eru að draga saman seglin.


Tengdar fréttir

„Play verður á­fram ís­lenskt“

Flugfélagið Play mun ráðast í umfangsmiklar breytingar og dregur úr verulega úr tengiflugi milli Evrópu og Norður-Ameríku. Á sama tíma verður aukin áhersla sett á sólarlandaferðir. Vélum og starfsfólki á Íslandi mun fækka, og sótt um flugrekstrarleyfi erlendis.

Töf á að flug­fé­lög­ njót­i al­menn­i­leg­a lækk­an­a á elds­neyt­is­verð­i

Verð á flugvélaeldsneyti hefur lækkað umtalsvert á fáeinum mánuðum. Greinendur segja að verði olíuverð áfram á svipuðum slóðum ætti það að hafa umtalsverð áhrif á afkomu og verðmat flugfélaga í Kauphöllinni. Flugfélögin Icelandair og Play hafa gert framvirka samninga um kaup á olíu sem hefur í för með sér að lækkunin skilar sér ekki að fullu í reksturinn strax.

Um­svifa­mikill verk­taki byggir upp stöðu í Icelandair

Eigandi eins umsvifamesta verktakafyrirtækis landsins, sem hagnaðist um marga milljarða króna á liðnu ári, er kominn í hóp stærri hluthafa Icelandair eftir að hafa byggt upp nærri eins prósenta eignarhlut í flugfélaginu. Hlutabréfaverð Icelandair, sem hefur fallið um meira en sextíu prósent á einu ári, er núna í sögulegri lægð en rekstrarafkoman hefur versnað skarpt samhliða minnkandi eftirspurn í flugferðum til Íslands og lækkandi fargjöldum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×