Handbolti

„Vel liðið eftir minni eigin sann­færingu og fylgi því“

Aron Guðmundsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands 
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands  Vísir/Vilhelm

Ís­lenska karla­lands­liðið í hand­bolta kemur bráðum saman og hefur keppni í undan­keppni Evrópu­mótsins 2026. Augu liðsins eru þó einnig á undir­búningi fyrir næsta stór­mót. Sjálft heims­meistara­mótið í janúar Þeir fáu dagar sem liðið fær saman á næstu mánuðum eru mikil­vægir og segir Snorri Steinn Guð­jóns­son, lands­liðs­þjálfari hug sinn vafa­laust á öðrum stað en hugur leik­manna á þessum tíma­punkti. Snorri gerir eina stóra breytingu á hópi Íslands. Sveinn Jóhannsson fær tækifærið í línumannsstöðunni. Reynsluboltinn Arnar Freyr Arnarsson þarf að sitja eftir heima.

Strákarnir okkar koma saman í upp­hafi nóvember og hafa viku saman til þess að æfa, stilla saman strengi og spila tvo leiki í undan­keppni EM 2026. Annars vegar heima­leik gegn Bosníu þann 6.nóvember og svo úti­leik gegn Georgíu í Tiblisi nokkrum dögum síðar en auk þessara liða er Grikk­land einnig í riðli Ís­lands.

Styttra er hins vegar á næsta stór­mót Strákanna okkar, sjálft heims­meistara­mótið í janúar, þar sem að Ís­lands spilar í riðli með Slóveníu, Kúbu og Græn­höfða­eyjum, í Za­greb í Króatíu. Komandi lands­leikja­gluggi í undan­keppni EM er ekki síður mikil­vægur í undir­búningi okkar manna fyrir HM.

„Fyrst og fremst er þetta náttúru­lega undir­búningur fyrir Evrópu­mótið 2026 og ég undir­strika það alveg,“ segir Snorri Steinn. „Við þurfum að sjá til þess að gera vel í þessari undan­keppni og koma okkur á næsta stór­mót með því að vinna þennan riðil. Það er alltaf mikil­vægt. Ég fer heldur ekkert í felur með það og er ekkert feiminn við að segja að það er langt síðan að við hittumst síðast. Við þurfum að nýta þennan glugga. Það er stutt í HM. Það sem að við gerum í þessari viku. Því betra sem það er því þægi­legra er það upp á undir­búninginn fyrir HM. Í mínum huga er undir­búningurinn fyrir það mót í janúar alveg löngu byrjaðir.“

Vísir/Vilhelm

„Alls konar plan og leik­greining á því sem kemur til með að gerast í janúar er alveg byrjuð. Ég þarf bara að for­vinna hlutina. Hugur minn er vafa­laust á öðrum stað heldur en hjá okkar leik­mönnum sem eru náttúru­lega bara á fullu með sínum fé­lags­liðum. Það er samt sem áður mikil­vægt að strákarnir, sér­stak­lega, fari og séu vonandi bara byrjaðir að leiða hugann að HM. Allt sem að þeir gerðu í sumar og gera með sínum fé­lags­liðum fram að móti miðast náttúru­lega líka við lands­liðið. Að vera í góðu formi í janúar og geta skilað frammi­stöðu þar. Því sama hvað við segjum, þá þurfum við á öllum okkar mönnum að halda þar. Undir­búningur okkar sem liðs og strákanna er alveg löngu hafinn.“

Vildi prófa eitthvað nýtt á línunni

Snorri Steinn gat valið sína sterkustu menn í komandi verk­efni í undan­keppni EM og gerir í raun bara eina stóra breytingu á hópnum þar sem að Sveinn Jóhanns­son, leik­maður Kol­stad kemur inn fyrir Arnar Frey Arnars­son, leik­mann Melsun­gen.

„Ég gat valið alla þá leik­menn sem ég vildi. Eins og staðan er í dag er enginn það meiddur að hann geti ekki gefið kost á sér. Auð­vitað er alltaf eitt­hvað hnjask hér og þar. Það bara fylgir þessu. Eina spurningar­merkið sem er uppi snýr hins vegar að Janusi Daða sem á von á barni í þessum töluðu orðum. Ég er bara á­nægður með stöðuna á okkar lands­liðs­mönnum. Að þetta sé sá hópur sem ég gat og vildi velja. Eina breytingin snýr að línu­manns­stöðunni. Sveinn Jóhanns­son kemur inn fyrir Arnar Frey sem hefur verið í öllum mínum lands­liðs­hópum frá því að ég tók við lands­liðs­þjálfara­stöðunni. Ég átti bara gott spjall við Arnar um þetta. Við fórum yfir stöðuna. Þetta er ekki val gegn honum. Ég vildi bara prófa eitt­hvað og hefur fundist vanta vigt í línu­manns­stöðuna. Ég hef fylgst vel með Sveini í vetur og vildi prófa hann. Gefa honum tæki­færi. Svo sjáum við bara til hvað gerist í janúar.“

Sveinn (til vinstri) í leik með Kolstad í Meistaradeildinni í handbolta. Hér hafa Sveinn og norska stórstjanan Sander Sagosen góðar gætur á leikmanni Barcelona.Vísir/EPA

Hvernig tók Arnar í þetta? Maður gerir sér það í hugar­lund að hann hafi verið svekktur.

„Hann tók þessu bara eins og maður. Eins og allir þeir sem að ég hringdi í og tjáði að yrðu ekki í liðinu. Hann gerði það bara af fag­mennsku. Það síðasta sem ég vill þegar að ég hringi í leik­menn og tjái þeim að þeir séu ekki í lands­liðs­hópnum er að þeir verði sam­mála mér og sáttir. Arnar hefur bara fullan rétt á því að vera svekktur. Hann á bara að vera það. Á að finnast hann vera betri en þeir sem að eru í liðinu í hans stöðu.“

Arnar Freyr í leik gegn Þýskalandi á síðasta Evrópumóti í upphafi þessa árs.Vísir/Getty

„Svona virkar þessi bransi. Ég vel liðið eftir minni eigin sann­færingu og fylgi því. Það verður engu að síður gaman að fá Svein í þetta lands­liðs­verk­efni. Því eitt er að sjá og horfa á þá spila í leikjum með sínum fé­lags­liðum, annað er að upp­lifa þá sjálfa á æfingum og í meira ná­vígi. Það verður spennandi.“

„Ég fagna þessu“

Þá bárust stór tíðindi af einu af stærsta nafni ís­lenskan hand­boltans á dögunum. Aron Pálmars­son er farinn til ung­verska stór­liðsins Vesprém eftir árs­dvöl hjá upp­eldis­fé­laginu FH þar sem að hann átti þátt í því að sækja Ís­lands­meistara­titilinn.

„Ég hef fengið að fylgjast með og vitað í hvað stefndi. Sem lands­liðs­þjálfari fagnarðu því þegar að þínir leik­menn eru að spila í topp­liðum í heiminum. Ég fagna þessu. Auð­vitað er þetta slæmt fyrir Olís deildina og leiðin­legt. Að hafa ekki þetta risa­nafn í henni. Að því sögðu held ég að þetta sé já­kvætt fyrir ís­lenska lands­liðið sem og Aron Pálmars­son sjálfan. Það sem er kannski já­kvæðast í þessu og virðingar­vert er að Aron hafi það enn í sér að rífa sig af stað. Eftir að hafa flutt heim. Að þetta hungur sé enn í honum. Að vilja spila í Meistara­deildinni, í topp­fé­lagi. Finnast hann eiga enn eitt­hvað eftir að sanna. Þetta er leik­maður sem hefur unnið nánast allt sem hægt er að vinna. Það finnst mér eigin­lega það geggjaðasta í þessu. Ég veit að Aron brennur fyrir ís­lenska lands­liðið og partur af því að vera þar er að fara út og spila á eins háu gæða­stigi og hann getur. Ég fagna þessu.“

Atvinnumenn sem þekkja þetta allt

Með fullri virðingu fyrir verk­efninu fram undan í undan­keppni EM 2026 eru lið Bosníu, Georgíu og Grikk­lands lið sem ís­lenska lands­liðið á að vinna og eru mögu­leikarnir á sæti á EM í gegnum undan­keppnina fyrir okkar menn mjög miklir.

Sem dæmi um það hversu öruggir skipu­leggj­endur Evrópu­mótsins eru á því að Ís­land vinni sér inn sæti í loka­keppninni má nefna þá stað­reynd að nú þegar er búið að út­hluta Ís­landi sæti í F-riðli loka­keppninnar sem verður spilaður í Kristian­stad. Hvað finnst Snorra Steini um það?

„Ég er nú ekki kominn svona langt að pæla í því hvar við verðum. Ég vissi hins vegar af þessu en ég efast um að strákarnir séu komnir þangað. Þetta eru allt at­vinnu­menn. Þeir þekkja þetta allt. Það að það sé ein­hver um­ræða og um­tal í þá átt að þetta sé auð­velt. Að það sé HM fram undan og þú kominn í EM, ég hef enga trú á því að það trufli liðið eitt­hvað. Við finnum bara leiðir til þess að ein­beita okkur að því sem að skiptir máli. Því sem að snýr að okkur. Við þurfum samt sem áður að hafa okkur alla við til að gera það. Komum heim, fáum stuttan tíma saman, stutt á milli leikja og mikið af hlutum sem við þurfum að fara yfir. Það krefst alveg ein­beitingar. Ef hún er ekki til staðar, þá yfir­leitt kemur það bara í ljós í Laugar­dals­höllinni þann 7. nóvember næst­komandi.“

Strákarnir okkar.Vísir/Vilhelm

Ís­lenska lands­liðið kemur sem mun lík­legra liðið til af­reka inn í komandi leiki gegn Bosníu og Georgíu. Það telur hins vegar ekki neitt því þegar á hólminn er komið þarf að mæta til leiks og skila frammi­stöðu.

„Þetta er alltaf þreytandi þegar að það er farið að tala svona en ég skil það alveg. Ég kvitta alveg undir það að við séum með betra lið en bæði Georgía og Bosnía. Þetta snýst ekki bara um að vinna leikina. Þetta snýst um að gera það vel. Gera það af krafti og mjaka okkur í þá átt að þeim stað sem við viljum vera á. Það er ekkert gaman að koma hingað heim, spila vonandi fyrir framan troð­fulla Laugar­dals­höll og gera það eitt­hvað illa. Það er langt síðan að við hittumst. Við þurfum á þessum lands­leikja­glugga að halda og á sama tíma er stutt í næsta glugga sem er stór­móta­gluggi, heims­meistara­mótið í janúar. Mikil­vægi þessarar viku sem við fáum saman núna í nóvember er mikið.“

Lands­liðið fær ekki marga daga saman í að­draganda næsta stór­móts og því þarf að nýta þessa fáu daga vel. Þá er Snorri Steinn dug­legur að kíkja á okkar lands­liðs­menn hjá sínum fé­lags­liðum. Til­gangur heim­sóknanna ekki bara til þess að sjá þá leik­menn spila.

„Ég er dug­legur að kíkja út. Og það er rétt hjá þér ég horfi líka alveg ævin­týra­lega mikið á hand­bolta. Ég er búinn að á­kveða að kíkja út á þá nokkra hjá þeirra fé­lags­liðum eftir komandi lands­liðs­verk­efni. Fyrir heims­meistara­mótið. Ekki það að ég þurfi að horfa á þá spila hand­bolta. Þetta snýst líka bara um að vera í góðum sam­skiptum við þá, heyra í þeim. Kynnast þeim að­eins því ég legg á­herslu á að það sé traust milli mín og leik­mannanna. Að þeim líði vel hvort sem að þeir séu að spila mikið eða lítið. Það er líka á­kveðin kúnst, sér­stak­lega þegar kemur að stór­mótum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×