Viðskipti innlent

Ætla að sækja einn og hálfan milljarð frá skemmti­­ferða­­skipum

Kjartan Kjartansson skrifar
Skemmtiferðaskipum sem koma til Íslands hefur fjölgað mikið á undanförnum árum. Þau eru talin hafa samkeppnisforskot á innlendu ferðaþjónustu þar sem þau hafa fram að þessu greitt takmarkaða skatta til íslenska ríkisins.
Skemmtiferðaskipum sem koma til Íslands hefur fjölgað mikið á undanförnum árum. Þau eru talin hafa samkeppnisforskot á innlendu ferðaþjónustu þar sem þau hafa fram að þessu greitt takmarkaða skatta til íslenska ríkisins. Vísir/Vilhelm

Nýtt innviðagjald sem heimta á af erlendum skemmtiferðaskipum á að skila ríkissjóði 1,5 milljörðum króna umfram þær tekjur sem hann hefði annars fengið. Tilgangurinn er sagður að jafna samkeppnisstöðu innlendra og erlendra ferðaþjónustufyrirtækja.

Kveðið er á um innviðagjaldið í frumvarpi starfsstjórnarinnar um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld sem gengur alla jafna undir nafninu bandormurinn. Fram að þessu hefur gistináttagjald verið innheimt af farþegum skemmtiferðaskipa.

Gjaldið á að nema 2.500 krónum fyrir hverja selda gistinótt fyrir hvern farþega skemmtiferðaskipa í millilandasiglingum á meðan þau dvelja við landið. Tekjur af innviðagjaldinu eiga að nema 1,9 milljörðum króna á næsta ári, þar af 1,5 milljörðum umfram það sem hefði ella orðið af erlendu skipunum.

Tilgangurinn með breytingunni er sagður að jafna samkeppnisstöðu innlendra og erlendra fyrirtækja í ferðaþjónustu eins og mögulegt sé í ljósi þess að skemmtiferðaskipin hafi greitt takmörkuð gjöld hér á landi til þessa.

Rekstraraðilar skemmtiferðaskipa í innanlandssiglinum greiða áfram gistináttaskatt fyrir hvern farþega fyrir hvern byrjaðan sólarhring í skipi. Það er breyting frá núverandi fyrirkomulagi en gistináttaskatturinn hefur verið lagður á hverja selda gistináttaeiningu. Með þessu er sagt komið til móts við sjónarmið rekstraraðila um að einfaldara sé að rukka gjaldið af hverjum farþega þar sem sala á ferðum miðist við farþega en ekki klefa eða káetu.

Þá er kveðið á um að gistináttaskattur myndi ekki lengur gjaldstofn til virðisaukaskatts.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×