Loksins vann Palace leik og komst upp úr fallsæti

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jean-Philippe Mateta fagnar marki sínu gegn Tottenham.
Jean-Philippe Mateta fagnar marki sínu gegn Tottenham. getty/Warren Little

Eftir þrjá tapleiki í röð vann Crystal Palace mikilvægan sigur á Tottenham, 1-0, í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Franski framherjinn Jean-Philippe Mateta skoraði eina mark leiksins á 31. mínútu eftir að Tottenham tapaði boltanum illa á hættulegum stað.

Spurs hafði klukkutíma til að jafna en varð ekki kápan úr því klæðinu. Lokatölur 1-0, Palace í vil.

Með sigrinum komst Palace upp úr fallsæti. Þetta var fyrsti sigur liðsins á tímabilinu. Spurs er í 8. sæti deildarinnar með þrettán stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira