Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 99-100 | Ótrúlegur endir kostaði Grindvíkinga sigurinn Smári Jökull Jónsson skrifar 24. apríl 2025 18:30 Jeremy Pargo og Jese Febres eigast við í Smáranum í kvöld. Vísir/Guðmundur Stjarnan er komin í 2-0 gegn Grindavík í undanúrslitaeinvígi liðanna í Bónus-deild karla. Stjarnan vann 100-99 sigur eftir ótrúlega dramatík og getur tryggt sér sæti í úrslitum með sigri í þriðja leik liðanna á mánudag. Grindvíkingar höfðu frumkvæðið allan fyrri hálfleikinn eru frá eru taldar allra fyrstu mínútur leiksins. Varnarleikur heimamanna var mun grimmari en í fyrsta leik liðanna í Ásgarði og þá voru Stjörnumenn að hitta afar illa fyrir utan þriggja stiga línuna og settu aðeins tvö skot niður af nítján í fyrri hálfleiknum. Hins vegar var Shaquille Rombley öflugur undir körfunni og spurning hvort áherslan hjá heimamönnum hafi verið að stoppa skyttur Stjörnunnar sem opnaði meira fyrir Rombley. Grindavík náði mest fimmtán stiga forskoti í stöðunni 50-35 en Stjarnan lauk fyrri hálfleiknum á 15-2 áhlaupi og sá til þess að aðeins munaði tveimur stigum í hálfleik. Staðan þá 52-50. Leikmenn Stjörnunnar mættu mjög grimmir til leiks í upphafi síðari hálfleiks en heimamenn svöruðu alltaf og skiptust liðin oft á tíðum á forystunni. Grindavík var með sex stiga forskot fyrir lokafjórðunginn og komst mest tíu stigum yfir þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir. Þá fór hins vegar flest að fara úrskeiðis sem gat hjá heimamönnum. Garðbæingar settu stór skot og þegar hálf mínúta var eftir minnkaði Rombley muninn í 99-98. Grindavík fór í sókn en tapaði boltanum og eftir leikhlé Garðbæinga skoraði Ægir Þór Steinarsson og kom Stjörnunni í forystu með örfáar sekúndur á klukkunni. Síðustu sekúndurnar virtust endalausar, Grindavík klúðraði innkastinu sínu og Garðbæingar köstuðu sínu innkasti í kjölfarið í hendur Jeremy Pargo sem náði ekki að finna samherja á leið sinni upp völlinn. Stjarnan náði að herja út sigurinn, lokatölur 100-99 og Garðbæingar komnir í 2-0 stöðu í einvíginu. Atvik leiksins Það voru svo mörg stór atvik í þessum leik. Karfan sem Grindvíkingar fengu eftir maraþonfund hjá dómurum leit út fyrir að vera stórt atvik, þeir fengu þá tvö stig eftir að dómarar og eftirlitsmaður hefðu fundað lengi um það hvort Grindvíkingar mættu biðja um að dómarar færu í skjáinn - komust þá í sjö stiga forystu. Atvikið þegar tíu sekúndur voru eftir var stórt, Garðbæingar fengu þá innkast eftir dómarafund og Ægir skoraði körfu í kjölfarið sem kom Garðbæingum yfir, karfa sem reyndist sigurkarfan. Eftir það gerðist samt svo margt, fyrst köstuðu Grindvíkingar boltanum útaf úr innkasti og síðan Garðbæingar í hendurnar á Grindvíkingum einnig úr innkasti. Það var svo eiginlega saga leiksins að Grindavík skyldi ljúka honum á töpuðum bolta í tilraun til að komast upp völlinn og tryggja sér sigurinn, tapaður bolti númer tuttugu og tvö hjá heimamönnum í leiknum. Stjörnur og skúrkar Frammistaða DeAndre Kane í þessum leik átti skilið að vera fyrir sigri. Hann skoraði 25 stig, tók 11 fráköst, gaf 9 stoðsendingar og var með 40 framlagsstig. Algjörlega stórkostlegur leikur af hans hálfu. Jeremy Pargo steig upp í stigaskorun í fjórða leikhluta en það er ekki hægt að horfa framhjá því að hann spilaði illa í fyrri hálfleik og átti þátt í tveimur töpuðum boltum á ögurstundu undir lokin. Valur Orri Valsson skoraði 9 góð stig af bekknum en tapaði 5 boltum. Alls voru töpuðu boltarnir 22 hjá Grindavík sem er ekki boðlegt í leik sem þessum en merki um grimman varnarleik Stjörnunnar. Hjá Stjörnunni var Jese Febres frábær, skoraði 24 stig og þó Ægir Þór Steinarsson hafi haft hægt um sig í stigaskori þá gaf hann 13 stoðsendingar og skoraði sigurkörfuna í leiknum. Shaq Rombley var mjög öflugur undir körfunni og nýtti færin sín vel. Dómararnir Þeir flautuðu afar mikið og í fyrri hálfleiknum var búið að dæma tuttugu og fjórar villur og þrír leikmenn inni á vellinum komnir í villuvandræði með þrjár villur. Þeir þurftu síðan að taka margar stórar ákvarðanir í lokin og nýttu skjáinn í nokkur skipti. Í eitt skiptið óskuðu Grindvíkingar eftir að atvik væri skoðað í skjánum, eftir að Shaq Rombley varði skot frá Ólafi Ólafssyni sem vildi meina að Rombley hefði gert það ólöglega. Það virtist enginn vera með á hreinu hvort Grindvíkingar mættu biðja um skoðun í skjá en eftir maraþonfund var það gert og Grindavík fékk tvö stig. Stemmning og umgjörð Grindvíkingar hentu í eitt stykki fjölskyldudag í Smáranum í tilefni fyrsta sumardags. Hoppukastalar fyrir krakkana og borgarar og öl fyrir þá fullorðnu. Þangað mættu stuðningsmenn beggja liða sem síðan fylltu Smárann og sköpuðu frábæra stemmningu. Bónus-deild karla UMF Grindavík Stjarnan
Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 99-100 | Ótrúlegur endir kostaði Grindvíkinga sigurinn Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 99-100 | Ótrúlegur endir kostaði Grindvíkinga sigurinn Körfubolti