„Ég er bara mjög góður. Þetta verður skemmtilegur leikur og ég held að allir séu tilbúnir að berjast fyrir klúbbinn,“ sagði Nikolaj í samtali við Val Pál Eiríksson eftir blaðamannafund í Víkingsheimilinu í gær.
En hvernig er spennustigið fyrir þennan stóra leik?
„Menn fá smá í magann fyrir leikinn en þegar hann byrjar pæla menn ekki í því og vilja gera allt til að vinna leikinn,“ sagði Nikolaj.
Ótrúlega stoltur af liðinu
Víkingur vann góðan sigur á Cercle Brugge, 3-1, í Sambandsdeildinni á fimmtudaginn. Nikolaj segir að það gefi Víkingum byr undir báða vængi.
„Við tökum þetta með okkur inn í leikinn á sunnudaginn og ég er ótrúlega stoltur af liðinu, hvernig við spiluðum,“ sagði Nikolaj.
Blikar spiluðu síðast á laugardaginn og fá því meiri hvíld fyrir úrslitaleikinn. Nikolaj segir að það muni litlu skipta.
„Oft er þetta bara hausinn. Núna er bara síðasti leikur og við þurfum að nota alla okkar krafta og gera allt til að vinna leikinn,“ sagði Nikolaj.
Það á eftir að koma rautt spjald
Grunnt hefur verið á því góða milli Víkings og Breiðabliks undanfarin ár og Nikolaj býst við hörðum leik á morgun.
„Ég held að þetta verði ótrúlega spennandi leikur og það á eftir að koma rautt spjald og allt fara í eitthvað. En þetta eru líka bara tvö lið sem ætla að vinna leikinn og lyfta bikarnum,“ sagði Nikolaj.
Daninn mun væntanlega standa í ströngu í baráttunni við miðverði Breiðabliks, Damir Muminovic og Viktor Örn Margeirsson. Það leggst vel í Nikolaj.
Fílar baráttuna
„Bara mjög vel. Ég held að Damir vilji fara aðeins meira í mig svo þetta verður bara gaman og ég fíla þetta líka. Ýta og vera seinir í tæklingar og eitthvað svona. En þetta er bara gaman. Blikar gera allt til að vinna og Víkingar gera allt til að vinna,“ sagði fyrirliðinn.
En hvað þarf Víkingur að gera til að vinna leikinn annað kvöld?
„Bara spila okkar leik. Það eru búnir einhverjir fimmtíu leikir í ár. Við þurfum bara að spila okkar leik, gera það sem við erum bestir í og fylgja leikplani þjálfaranna. Ég er spenntur. Þetta verður frábær dagur,“ sagði Nikolaj að lokum.
Leikur Víkings og Breiðabliks fer fram á Víkingsvelli klukkan 18:30 á sunnudaginn og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 17:45. Eftir leikinn verður Besta deild karla svo gerð upp í lokaþætti Stúkunnar.