Lífið

Steindi skildi ekkert í dönsku á Barbie safni í Köben

Stefán Árni Pálsson skrifar
Dóri fær oft nóg af Steinda í þáttunum 1 Stjarna.
Dóri fær oft nóg af Steinda í þáttunum 1 Stjarna.

Í síðasta þætti af 1 Stjarna voru þeir Steindi og Dóri mættir til Köben til að upplifa allt það versta sem borgin hefur upp á að bjóða.

Eitt af því var að fara á Barbie safn í borinni sem fær mjög misjafna dóma á veraldarvefnum. Starfsmaður safnsins gat lítið sem ekkert tjáð sig á ensku og því fóru öll samskipti fram á dönsku. Dóri greinilega hlustað vel í dönskukennslu í grunnskóla, en það sama er ekki hægt að segja um Steinþór sem skildi í raun ekkert hvað rætt var um í heimsókninni.

Þættirnir eru á dagskrá á Stöð 2 á föstudagskvöldum en þeir fjalla um þessa tvo æskuvini sem fara í spreng hlægilegt ferðalag um heiminn. Þar prófa þeir verstu staði í heimi. Dóri segist hafa fengið nóg af Steinþóri og lýsir honum sem skelfilegum ferðafélaga á meðan Steindi heldur ekki vatni yfir Dóra.

Hér að neðan má sjá atriði úr síðasta þætti.

Klippa: Steindi í veseni í dönskunni





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.