97 brauðskráðust frá HR Atli Ísleifsson skrifar 28. október 2024 10:58 Stefan Wendt, deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar, afhendir útskriftarnema prófskírteini. HR 97 nemendur útskrifuðust frá Háskólanum í Reykjavík í Norðurljósum í Hörpu á laugardag. Fimm nemendur luku doktorsprófi frá HR að þessu sinni, allir frá tölvunarfræðideild.
Í tilkynningu frá skólanum segir að flestir nemendur hafi útskrifast frá viðskipta- og hagfræðideild, eða alls 71 nemandi, og hafi þeir allir lokið meistaraprófi. Tveir nemendur luku námi frá íþróttafræðideild; annar þeirra lauk diplómanámi og hinn meistaranámi. Einnig luku tveir nemendur námi frá tæknifræðideild; annar lauk grunnnámi og hinn diplómanámi. Þrír nemendur luku meistaranámi frá lagadeild og tveir nemendur luku meistaranámi frá tölvunarfræðideild. Þá luku tólf nemendur meistaranámi frá verkfræðideild. Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR.HR Í tilkynningu segir að í ræðu sinni hafi Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, meðal annars rætt hversu mikilvægt það væri að fólk veldi þá leið í lífinu að ljúka meistara- eða doktorsnámi, og haflað sér þannig sérþekkingar sem oft væri einstök. „En það að öðlast djúpa þekkingu á tilteknu viðfangsefni, færir einstaklingnum sjálfum líka algera lykilfærni fyrir framtíðina. Þetta á við sama hvaða fag er valið – endurskoðun, tæknifræði eða miðaldabókmenntir: það að læra eitthvað á dýptina þjálfar fólk í því að tileinka sér nýja þekkingu, æfir gagnrýna hugsun og þjálfar fólk í að þekkja fagmennsku í vísindum og góð vinnubrögð,“ er haft eftir Ragnhildi. Vigdís Hafliðadóttir og Steingrímur Teague fluttu tónlist við athöfnina.HR Hún ræddi einnig komandi þingkosningar og þær breytingar á fjármögnun íslenskra háskóla sem gerðar hafa verið á því kjörtímabili sem senn lýkur. „Við vöruðum við því að nýja líkanið mætti ekki verða til þess að skerða frelsi vísindarannsókna og sjálfstæði háskóla. Sambærileg líkön hafa verið innleidd í nágrannalöndum og eru þar talin hafa aukið pólitískan þrýsting á háskólana. Það er því ástæða til að fara varlega. Af sömu ástæðu finnst okkur skipta máli að HR sé ekki að fullu fjármagnaður af hinu opinbera – en á ykkar námstíma hefur hann verið það á bilinu 52 til 56 prósent,“ sagði Ragnhildur. Þá kvaðst Ragnhildur vona að menntamál fengju sess í pólitískri umræðu næstu vikurnar. „Alþingiskosningar eru að mínu viti alltaf gleðilegar – það að kjósendur eigi síðasta orðið um stefnu, ráðamenn og hvernig skal höggvið á hnúta er besta leið sem hefur fundist til að taka slíkar ákvarðanir. Ég vona innilega að menntamál, vísindi og nýsköpun fái þann sess sem þau eiga skilið í pólitískri umræðu næstu vikna. Án öflugs menntakerfis, frá leikskóla og upp í háskóla, verður íslenskt samfélag ekki samkeppnishæft. Og ef það gerist, þá eruð það þið, ungt fólk og vel menntað, sem við missum fyrst frá okkur og þá fylgir velferðin hratt á eftir.“ Teddy Keen, MSc í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði.HR Teddy Keen, MSc í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði, hélt ræðu fyrir hönd útskriftarnema. Hann sagði útskriftardaginn tákna upphaf alls kyns stórkostlegra hluta til að hlakka til. „Að finna draumastarfið, að þróast í núverandi starfi, eða að verða leiðandi fræðimenn. Það sem við þurfum öll að muna er að það að vera hér í HR hefur gefið okkur nýja sýn á lífið. Hvort sem þú verður áfram hér á Íslandi eða ferð erlendis, mun orðspor þitt sem nemandi frá HR fylgja þér alls staðar, og það er mikilvægt að við sem höfum útskrifast frá skólanum verðum áfram góðir fulltrúar HR, bæði hér á landi og úti í heimi.“
Skóla- og menntamál Háskólar Tímamót Mest lesið „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ Atvinnulíf Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð Viðskipti innlent 97 brauðskráðust frá HR Viðskipti innlent Hvernig verður steypa græn? Samstarf „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Atvinnulíf Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ Atvinnulíf Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Viðskipti innlent Salmonella í Pekingönd Neytendur Ekki allar verslanir sem hleypi verðlagseftirlitinu að Neytendur Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Atvinnulíf Fleiri fréttir Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð 97 brauðskráðust frá HR Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Furðulegt að gjaldtaka taki ekki mið af styrkleika Fjögur erlend fyrirtæki keppa um rekstur Fríhafnarinnar Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar Breki áfram formaður Bjarmi sest í stjórnina og Trausti tekur við Tekur við formennsku í hugverkaráði Samtaka iðnaðarins Framkvæmdir hafnar við Búrfellslund Nikótínpúðar gætu hækkað um 300 kall með nýju gjaldi Ætla að sækja einn og hálfan milljarð frá skemmtiferðaskipum Vaxtatekjur Íslandsbanka drógust saman milli ára Fjögur félög Bergvins gjaldþrota Gera langtímasamning við eitt stærsta fyrirtæki Noregs Guðjón og Kristinn Þór nýir sviðsstjórar hjá VSB Fimm milljarðar í tekjur af vöxtum á mánuði Skerða líka raforku fyrir norðan og austan Miklu fleiri vilja hlutdeildarlán en fá Ólöf til liðs við Athygli Atvinnuleysi tvöfaldaðist í september Lög um Bankasýsluna verði afnumin Tekjur jukust um sjö prósent milli ára Hagnaður dregst saman um tæpa tvo milljarða króna Carbfix hlaut Nýsköpunarverðlaunin Bein útsending: Markaðsmál í brennidepli á nýsköpunarþingi Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins – Atvinnulífið leiðir Oculis rauk upp eftir tilkynningu Nýr framkvæmdastjóri á Oche Sjá meira