Leikurinn við Dani fer fram í Murcia og er líkt og leikirnir við Bandaríkin liður í undirbúningi Íslands fyrir Evrópumótið í Sviss næsta sumar.
Með fræknum sigrum gegn Þýskalandi og Austurríki tryggði Ísland sér farseðil beint á EM og þurfti ekki að taka þátt í umspilinu, sem fram fór á meðan Ísland mætti Bandaríkjunum og heldur svo áfram um mánaðamótin nóvember-desember.
Svipaða sögu er að segja af Dönum sem lentu í 2. sæti síns undanriðils og komust beint á EM, með sigrum gegn Belgum og Tékkum en tveimur töpum gegn heimsmeisturum Spánar.
Skammt er síðan að Ísland og Danmörk mættust síðast en það var í riðlakeppni Þjóðadeildar UEFA. Ísland lauk þeirri keppni á fræknum 1-0 útisigri sem kom í veg fyrir að Danir ynnu riðilinn. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði sigurmarkið.
Danmörk hafði hins vegar unnið 1-0 sigur í leik liðanna á Laugardalsvelli. Amalie Vangsgaard skoraði sigurmarkið.
Ísland og Danmörk verða bæði í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir Evrópumótið þann 16. desember.
KSÍ hefur einnig samið við Knattspyrnusamband Póllands um vináttuleik U21-landsliða þjóðanna, skipuðum leikmönnum fæddum 2004 og 2005. Sá leikur fer einnig fram á Spáni, 17. nóvember.