Lífið

Hafi áður tekið of stóran skammt

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
28th ARIA Awards epa04504551 Member of British band One Direction, Liam Payne performs during the 28th annual ARIA Awards at The Star in Sydney, Australia, 26 November 2014. EPA/DAN HIMBRECHTS AUSTRALIA AND NEW ZEALAND OUT
28th ARIA Awards epa04504551 Member of British band One Direction, Liam Payne performs during the 28th annual ARIA Awards at The Star in Sydney, Australia, 26 November 2014. EPA/DAN HIMBRECHTS AUSTRALIA AND NEW ZEALAND OUT EPA/DAN HIMBRECHTS

Breski söngvarinn Liam Payne hafði áður tekið of stóran skammt eiturlyfja þannig að honum varð að bjarga. Hann er sagður hafa verið í engu ástandi til þess að taka þátt í upptökum á raunveruleikaþáttum Netflix sem fram fóru fyrr á þessu ári.

Þetta kemur fram í umfjöllun PageSix sem vísar í ónefnda heimildarmenn sem sagðir eru nánir söngvaranum. Eins og alkunna er lést Payne á dögunum í Argentínu þar sem hann féll fram af svölum á hóteli eftir mikla eiturlyfjaneyslu.

Hafi alltaf átt erfitt með neyslu

Fram kemur í umfjöllun bandaríska miðilsins að vinir og fjölskylda Payne hafi verið afar hissa þegar söngvarinn ákvað að taka þátt í raunveruleikaþáttunum Building the Band. Hann hafi verið nýkominn úr meðferð. Payne var dómari í þáttunum þar sem þátttakendur fengu tækifæri til þess að stofna hljómsveitir saman.

„Umboðsmaðurinn hans lagði hart að honum að taka þátt í þættinum og við höfðum miklar áhyggjur af þessu, við vorum í áfalli því hann var engan veginn í standi til þess að sinna þessu,“ segir heimildarmaðurinn við PageSix.

Hann segir söngvarann hafa verið einangraðan síðustu mánuði sína á lífi. Hann hafi eytt litlum sem engum tíma með vinum sínum og fjölskyldu. Fram hefur komið að forsvarsmenn Netflix vonist til þess að geta sýnt þættina þó það sé ekki ljóst.

Segir í umfjöllun PageSix að dópneyslan hafi verið Payne fjötur um fót undanfarin ár, allt frá því að One Direction lagði upp laupana. „Hann var brotinn eftir þetta og náði sér aldrei.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.