Handbolti

Níundi sigur Óðins og fé­laga í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Óðinn Þór Ríkharðsson hefur raðað inn mörkum fyrir Kadetten Schaffhausen í vetur.
Óðinn Þór Ríkharðsson hefur raðað inn mörkum fyrir Kadetten Schaffhausen í vetur. getty/Jan-Philipp Burmann

Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen náðu sjö stiga forskoti á toppi svissnesku úrvalsdeildarinnar í handbolta með stórsigri á Amicitia Zürich í kvöld, 30-20.

Þetta var níundi sigur Kadetten í röð en liðið hefur unnið ellefu af fyrstu tólf leikjum sínum í svissnesku deildinni.

Óðinn skoraði sex mörk úr sjö skotum og var markahæstur í liði Kadetten ásamt Marvin Lier. Kristian Pilipovic var frábær í marki liðsins og varði þrettán skot (47 prósent).

Í þýsku úrvalsdeildinni vann Göppingen Potsdam með fimm marka mun, 30-25.

Ýmir Örn Gíslason skoraði eitt mark fyrir Göppingen sem er í 13. sæti deildarinnar með sex stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×