Lífið

Margot Robbie orðin mamma

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Frumburður Margot Robbie reyndist vera strákur.
Frumburður Margot Robbie reyndist vera strákur. Getty

Leikkonan Margot Robbie og Tom Ackerley eignuðust dreng í síðasta mánuði. Um er að ræða fyrsta barn þeirra hjóna sem hafa verið gift frá 2016.

Bandaríski dægurmálamiðillinn People hefur fréttirnar eftir heimildarmanni. Nánari upplýsingar um soninn liggja ekki fyrir, hvorki nafn hans né fæðingardagur.

Robbie og Ackerley á Wimbledon í sumar.Getty

Hin ástralska Robbie og hinn breski Ackerley, sem bæði eru 34 ára, kynntust á kvikmyndasetti fyrir bíómyndina Suite Française, sem gerist í seinni heimsstyrjöldinni, árið 2013. Þar starfaði Ackerley sem aðstoðarleikstjóri. Þau giftust þremur árum síðar í Byron-flóa í Ástralíu.

Saman stofnuðu þau framleiðslufyrirtækið LuckyChap ásamt tveimur öðrum, þar á meðal æskuvinkonu Robbie Sophia Kerr. Fyrirtækið hefur framleitt fjölda mynda, þar á meðal myndirnar I, Tonya, Birds of Prey og Barbie. Robbie fór með hlutverk í öllum fyrrnefndum myndum og er ein skærasta stjarna Hollywood í dag.


Tengdar fréttir

Margot Robbie ólétt

Ástralska leikkonan Margot Robbie á von á sínu fyrsta barni með kvikmyndagerðarmanninum Tom Ackerley.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×